Sölustúlka: Já! Ehhh, get ég aðstoðað þig?
Viðskiptavinur: Ha? Nei, nei, ég er nú bara að skoða. Eða, jú annars. Áttu nokkuð þessa til í grænu?
Viðskiptavinur: Ehhh... hérna... hvað segirðu? Áttu hana til eða ekki?
Sölustúlka: Ha? Hvað segirðu?
Viðskiptavinur: Ehhh... ég spurði hvort þú ættir þessa húfu til í grænu.
Sölustúlka: Nei, hún er rauð.
Viðskiptavinur: Já, ég veit að þessi húfa er rauð, en ég var sumsé að velta því fyrir mér hvort þú ættir til samskonar húfu, bara græna á litinn.
Sölustúlka: Já, nei. Það er bara þessi. Eða þessar. Sko, þessar sem eru hérna uppi.
Viðskiptavinur: Já, já, þannig. Jæja...
Sölustúlka: Hérna... hvað viltu eiginlega?
Viðskiptavinur: (undrandi) Ehhh... Ég vildi sumsé vita hvort þú ættir græna húfu til að selja mér. Ef hún hefði verið til, þá hefði ég keypt hana.
Sölustúlka: Jaaaaá...
Sölustúlka: Hérna, þetta er mjög algengt að fólk sé að spyrja svona!
Viðskiptavinur: Ha?
Sölustúlka: Nei, þetta er mjög algengt.
Viðskiptavinur: Hvað þá?
Sölustúlka: Það er mjög algengt að fólk sé að spyrja svona allskonar, um hvort að húfan sé til í allskonar litum og svona.
Viðskiptavinur: Ehhh, já, já... Allt í lagi...
Best finnst mér samt eiginlega þegar hún stappar í viðskiptavininn stálinu og fullvissar hann um að það séu margir sem spyrji svona spurninga. Dásamlegt.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)