Oft hef ég nú skrifað um hin óvönduðu vinnubrögð á mbl.is og haft gaman að vitleysunni sem vellur oft út úr þessari annars ágætu fréttaveitu.
Mér varð þó sérstaklega skemmt að sjá þessa dásamlegu mótsögn á forsíðu vefsins áðan og gat ekki annað gert en að smella af einu screenshot-i.
Hér má lesa meira um mikilvægi réttar stafsetningar og svo geta menn velt vöngum yfir afdrifum Kongóbúans sem reyndist uppvís að vegabréfsfalsunununum.
Nú vil ég síst af öllu taka upp moggann fyrir vefhanskann, en ég held ekki að "vegabréfafals" sé vitlaust.
Þetta er reyndar tvírætt, hver veit nema þetta sé eignarfall af "vegabréfafalur."
Það er spes græja.
Eða bara: Vegna vegabréfafalss, hehe ... Svo er hann örugglega hæstánægður með að vera kominn í frítt fæði og húsnæði í fangelsi á Íslandi, það var sennilega hvort eð er planið.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)