24.8.2009 | Bullandi afneitun

Ég rakst á þessa skemmtilegu bloggfærslu fyrrum bankastarfsmanns, titlaða "Danir eru smáborgaralegir fávitar" í dag. Inntak skrifanna er að íslensku bankarnir hafi verið ótrúlega frábærir en allir hinir, sérstaklega dönsku bankarnir hafi verið geðveikt glataðir skítabankar. Síðan hafi þetta reyndar fokkast upp, en það breyti því ekki að íslensku bankarnir hafi í raun verið miklu meira töff og æðislegir.

Þetta þykir mér vera ofboðslega skemmtilegt viðhorf sem missir algerlega sjónar á stöðu mála í dag.

Vissulega má segja að danskar bankastofnanir séu frekar leiðinlegar og erfiðar í viðskiptum, en þær eru þó allavega ennþá burðugar og geta sinnt hlutverki sínu.

Manni dettur helst í hug að svona skrif séu skáldskapur og uppspuni. Varla hugsi nokkur maður svona ennþá.

david oddsson a motmaelafundi small
Davíð Oddson, einnig haldinn ranghugmyndum á þessari mynd, sem
hlýtur að vera fréttamynd ársins.

Annars, þessu ótengt, finnst mér líka rétt að benda á stórkostlega furðulega grein í DV sem fjallar um... tjah, það er ekki gott að segja. Eftir því sem ég fæ best séð er verið að setja ofan í við Kate Moss fyrir einhver gamansöm fyllerís komment um lífstíl glamúrpíunnar.

Gott að fá það samt á prenti að maður verði að borða mat endrum og eins, og það sé einfaldlega ekki lífvænlegt að drekka bara kaffi, kampavín og vodka og reykja þess á milli sígarettur. Þetta var náttúrlega farið að vefjast svolítið fyrir mér, því ég hef ekki grunnkenndir eins og hungur eða almennan lífsvilja.


4 comments
(Arnaldur)




4 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 24.8.2009

Sveinbjörn

Þessi Kate Moss grein er eitt furðulegasta dæmi um blaðamennsku sem ég hef rekist á....

[ Reply ]

Arnaldur at 26.8.2009

Arnaldur

Mér finnst þetta stórkostlegt. Epískt jafnvel. Fær mig til að vilja gerast blaðamaður.

[ Reply ]

Aðalsteinn at 24.8.2009

Aðalsteinn

"Danir eru smáborgaralegir fávitar"

Þetta er það skrítnasta sem ég hef á ævinni lesið.

Þegar ég fór á mánaðar drykkjutúr þá voru einhverjir smáborgaralegir fávitar sem sögðu mér að hann myndi enda illa og reyndar endaði það mjög illa en þeir eru samt fífl því það var ógeðslega gaman á meðan drykkjunni stóð...

Og þessi gaur var meira að segja greinilega rekinn síðasta haust... hve frábært er fyrirtæki sem rekur þig... æi.

[ Reply ]

Arnaldur at 26.8.2009

Arnaldur

Ég eiginlega veit ekki almennilega hvað maður getur sagt.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment