Samkvæmt frétt á mbl.is mun 17 ára stúlka hafa myrt 30 manns í Brazilíu á síðastliðnum 3 árum. Það eru um einn maður á mánuði að jafnaði.
Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta eiginlega pínku töff. Maður fær einhvern svona Dexter-fílíng við að lesa þetta.
Aftur á móti eru flestir sem blogga um fréttina á mbl-vefnum greinilega fremur hneykslaðir. Sjónarmið sem ég tek gjarnan eftir þegar fólk tjáir sig um gróf ofbeldisverk er að hér sé allt að fara til fjandans og mannkynið eigi sér ekki viðreisnarvon og ástand mála fari versnandi frá degi til dags. Að grimmdin færist sífellt í aukana.
Þetta fólk hefur aldrei opnað sagnfræðirit.
(Anonymous Coward)