Það er mikið fárast yfir rauðvíssulli drykkjurútsins Sigmundar Ernis á frétta- og bloggsíðum landsins.
Við tækifæri sem þetta sjá margir ástæðu til að berja saman, af miklum vanefnum, ferskeytlum sem er ætlað að taka á málinu á skondinn og hnitmiðaðan hátt.
Það liggur í hlutarins eðli að ekki er öllum gefin þessi ágæta list og leirburðardæmin ansi mörg.
Eftirfarandi kviðlingur var í athugasemdakerfi eyjunnar.is í boði Sigurjóns Vigfússonar:
Sitja þeir í rauðvínslegi,
sáttir setja stútar.
Teygar frekir sopann í
þyrstir Samfylkingar stútar,
Gleymd er nú sú fyrri gjör,
ekkert er þar minni.
muna ekkert eftir fyrri stjórn,
Er bankar hrundu í þeirra stjórn.
(Grímur)