27.8.2009 | Eitt og annað úr pólitískri ruslakistu gærdagsins

Ég hef um nokkurt skeið fylgst með Magma/HS málinu en stend mig gjarnan að því að vera ekki alveg að kveikja 100% á því hvað það gengur út á í smáatriðum. Þegar ég hef svo reynt að leita uppi samantektir á netinu, eru þær oft svo ruglingslegar og ofur detalijeraðar að maður missir fljótt áhugann.

Mér finnst því rétt að benda á þessa ágætis samantekt um Magma/HS málið sem Steindór hefur sett saman og er birt á vefritinu.is.

Ég stend mig ekkert alltof oft að því að vera almennt mjög hrifinn af því sem Jón Baldvin Hannibalsson er að sýsla í sínu rauðvínslegna horni, en undanfarið hefur hann skrifað nokkra athyglisverða pistla, einkum um icesave ábyrgðir. Jón kemur hér með ágætis hugleiðingu um persónulegar ábyrgðir hlutaðeigandi, og ásetning þeirra í enn einum pistlinum um icesave.

Ragnheiði Ríkharðsdóttur, 1. varaforseta Alþingis finnst þingmenn haga sér eins og ólátabelgir í skólastofu og vill láta taka á málinu svo allir sitji þægir og prúðir í sátt og samlyndi. Sjálfur er ég ekkert endilega svo viss um ágæti þess. Persónulega hefur mér til dæmis alltaf þótt vera einhver sjarmi og heilindi í framíköllum þingmanna breska þingsins. Slíkt held ég að haldi mönnum við efnið og hvetji þá til að setja sér hnitmiðaðan og beittan stíl. Þá hefði maður ef til vill frekar geð í sér til að fylgjast með einstökum umræðum á þingi.

Björn Bjarnason verður nú seint þekktur fyrir annað en athyglisverð pistlaskrif, hvernig sem á það er litið. Í dagbókarfæslu sinni fyrir miðvikudaginn 26. ágúst, skrifar hann þó mjög óskiljanlega grein, sem þó er, að öllu öðru slepptu, ekki endilega stílbragð Björns.

Í stuttu máli má segja að innihald pistilsins sé eftirfarandi:

Lýður Guðmundsson (Exista) og Ross Beaty (Magma Energy) eru báðir bara dáldið huggulegir og geðþekkir menn. Annað en þessi Þóra Arnórsdóttir (þó hún sé allt í lagi). Eða bloggarar sem blogga á internetinu. Mér finnst bloggarar geðveikt ömurlegir glæpamenn.

Ég "gúglaði" Ross og hann er geðveikt fínn gaur. Mér finnst að við eigum bara að selja honum allt draslið fyrst hann vill kaupa. Ég meina við erum hvorteðer búin að skíta svo mikið upp á bak að það væri fínt að fá smá pen akkúrat núna (eins og krakkmella).

Annars eru allir eitthvað svo pirraðir yfir þessu, sem ég skil ekki. Fólk er núna alltaf eitthvað með eitthvað diss við það að gefa milljónamæringum allskonar eigur ríkisins??? Hvað er það?

Ég meina það var meiraðsegja þáttur á BBC, þar sem einhver geðveikt klár gaur var að segja að sumir kapítalistar eru ekki töff, á meðan að aðrir eru bara frekar fínir og næs.
Q.E.D. Motherfokker!

Já, svo var ég líka að skrifa eitthvað um Ísland og ESB.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment