Nú eru allar forsendur þess að búa hérna brostnar.
Fyrr á árinu fengum við að finna á eigin skinni verulegar hækkanir á tollum og gjöldum á tóbaki og áfengi.
Hækkuðu þessar vörur svo dramatískt að þær hafa mjög íþyngjandi áhrif á þegar sligaðan efnahag heimilanna.
Nú er svo hugmyndin að hækka vörugjöld á kaffi!
Með öðrum orðum þá er búið að taka kaffi, sígó og bjór og gera þessar vörur að einhverjum munaði sem á að greiða fyrir vanhæfni og einkatap kaupsýslumanna.
U.þ.b. 70% af minni einkaneyslu er kaffi, bjór og sígó.
Ég er mjólkurkýr íslenska ríkisins.
(Siggi)