7.9.2009 | See if you can't get me some of those legal, over-the-counter wake-up drugs!!!

Jenný Anna Baldursdóttir skrifar á síðu sína pistil þar sem hún mælir fyrir afnámi bankaleyndar yfir sumum, en ekki öðrum. Reyndar lætur Jenný hjá líða að minnast á hvernig hún vill að staðið sé að þessu manngreiningaráliti, en ég efast reyndar um að það væri henni sérlega kært ef að hennar persónulegu fjármálaupplýsingar væru birtar í öllum fréttamiðlum landsins.

Jenný setur þó þann fyrirvara á að hún sé ekki málefnaleg í skrifum sínum, og er það vel.

Það sem vakti þó helst athygli mína var athugasemd Ólínu Ásgeirsdóttur en hún skrifar við grein Jennýar:

Hvernig væri að stjórnvöld héldu hreinlega úti dynamiskri rás, þar sem fram færu rökræður allan daginn og upplýsingum væri stanslaust dælt út.

Ólína heldur svo áfram:

Ég verð alveg brjáluð á þessu endalausa innihaldslausa Popplandi rásar 2 og skorti á upplýsandi þroskaðri umræðu. Tek það fram að ég bý úti á landi og tala mest við hundinn minn sem mér finnst sífellt vænna um eftir afhjúpun á karakter íslenskra auðmanna.

Mér finnst þetta ágætis tillaga. Kastljósið og Silfrið að gubbast yfir mann allan sólarhringinn, meðan maður þusar yfir þessu öllu saman við hundinn sinn. Þá held ég nú aldeilis að svartsýnin færi fyrst að hörfa frá, og geðheilbrigði fólks væri borgið.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment