8.9.2009 | Af netlöggum og nafnlausum gungum og druslum

Nokkuð hefur borið á því að þingmenn og aðrir framámenn í samfélaginu hafa verið að tjá sig um hina hræðilegu ógn sem nafnlausir bloggarar eru.

Stundum hefur þessi umræða snúist upp í það að banna verði nafnlausan rógburð á netinu með einhverskonar löggjöf, nú síðast í máli Ragnheiðar Ríkharðsdóttur.

Mæða þessa fólks er með nokkru skiljanleg. Aragrúi meiðandi athugasemda flæðir um athugasemdakerfi íslenskra frétta og bloggsíðna. Stundum er þar jafnvel grófur rógburður sem öðlast sjálfstætt líf, eins og Björgvin G. segist hafa orðið fyrir, en hann var á dögunum vændur um ósæmilega hegðun undir áhrifum áfengis og framhjáhald.

Sjálfum leiðast mér þessar firrtu og oft á tíðum ofstopafullu athugasemdir sem ákveðnir nafnlausir einstaklingar senda frá sér, og mig rennur í grum um að ég sé ekki einn um það.

En það er einmitt málið. Ég held að fæstir leggi sig eftir því að taka mark á slíkum upphrópunum yfir höfuð. Auðvitað er leiðinlegt að lenda í svona löguðu, en öll umræða um að banna hitt og þetta í tengslum við slíkt finnst mér fram úr öllu hófi.

Að ekki sé minnst á þá vandræðalegu stöðu sem kemur upp þegar þingmenn fara að munda lagasetningar-sprotann í þeirri andrá sem upp spretta einhver leiðindamál sem snerta þá sjálfa, eins og Sigurður Þór Guðjónsson bendir réttilega á, á síðu sinni.

netlogga vg

Árið 2007 var mikið gys gert að núverandi fjármálaráðherra Steingrími J. Sigfússyni, aðallega úr herbúðum ungra Framsóknar- og Sjálfstæðismanna fyrir ummæli sem hinn þáverandi þingmaður úr stjórnarandstöðu lét falla í sjónvarpsviðtali, í þá veruna að honum þætti vert að kynna sér hvort ekki væri hægt að takmarka dreifingu ólögmæts efnis á netinu, t.d. klámefnis.

Snúið var út úr þessum bollaleggingum Steingríms á þann hátt að hann vildi koma á fót einhverskonar "netlöggu" sem ætti að hafa eitthvert allsherjar eftirlit með internetinu. Steingrímur var kallaður "netlögga" og hefur það viðurnefni festst að einhverju leyti við hann síðan.

Sjálfum þótti mér Steingrímur ekki koma neitt sérlega vel út úr umræddu viðtali, þótt ég þættist skilja inntak hugmyndar hans. Aftur á móti þótti mér leiðinlegra að sjá umrædda útúrsnúninga.

Eilítið fyrr hafði Alþingi samþykkt lög af borði þáverandi Samgöngumálaráðherra sem stórjók eftirlit löggæsluyfirvalda með samskiptum og umferð um netið, auk þess að rýmka heimildir löggæslumanna til að seilast í þessi gögn, án góðrar ástæðu. Sú aðgerð þótti þó ekki sérlega eftirtektarverð, ekki frekar en tilraunir dómsmálaráðherra til að setja upp síur fyrir "óæskilegt" myndefni á netinu.

Í heildina litið er mikið af sora á internetinu. Þar er líka mikið af nafnlausum gungum og druslum. Ekkert af þessu er þó verra en að koma á einhverskonar "Stóra Bróður" fyrirkomulagi sem allt eins mætti nota til að hefta hressileg skoðanaskipti. Mér þykir það óþægilegt að til sé fólk sem finnst það vera vel í stakk búið til að ákveða fyrir okkur hin hvað sé æskilegt og hvað annað ekki.

Það er leiðinlegt að menn skuli lenda í persónuárásum og því ber að taka alvarlega, en ekki með persónusniðnum lagasetningum eða með því að færa slíkum nafnleysingjum sem fyrir þeim standa, áþreifanleg völd sem viðurkenning á gjörðum þeirra fylgir.


2 comments
(Grétar)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 9.9.2009

Sveinbjörn

Já, hjartanlega sammála, svo ekki sé minnst á að það er engin leið til þess að ritskoða internetið almennilega. Allar tilraunir ástrala og kínverja í þá áttina hafa misheppnast allsvakalega.

Raunverulegu kostirnir sem við stöndum frammi fyrir er annað hvort að hafa internetið, með öllum sínum sora, aðgengilegt fólki, eða að banna það með öllu. Síðari kosturinn er auðvitað fráleitur, og það væri mikil synd ef ríkið myndi sóa peningum í óskilvirkar og gagnslausar ritskoðunartilraunir.

[ Reply ]

Grétar at 10.9.2009

Grétar

Góðar pælingar Naldó. Það hefur eitthvað lítið heyrst í þessum sömu ungu sjöllum núna vegna hennar Ragnheiðar.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment