Nú síðast hefur Guðni Ágústsson fyrrum ráðherra og þingmaður Framsóknarflokks sprottið fram úr röðum hvítþvottarmanna og lýst yfir undran sinni á einkennilegri "græðgisvæðingu" samfélagsins upp úr aldamótum.
Guðni segist ekkert skilja í því hvað gerðist og allt í einu hafi heiðvirðir Sambandskaupmenn og Kolkrabba-mannvinir umturnast í mammons-dýrkandi, eldspúandi dreka sem rifu í sig samfélagið.
Sennilegast megi rekja þetta allt til þess að hið vel unna og dyggðuga Fjölmiðlafrumvarp hafi verið kæft af óvinum lýðræðisins og hentistefnuflokkum á borð við Samfylkingu.
Guðni segir einnig að hann hafi verið æstur í að koma á þjóðstjórn þegar landið var brunnið undan ráðherrastól hans.
LOLCAT!!!
(Arnaldur)