16.9.2009 | Sjálfstæði smálfstæði

Ég rakst á ágætis grein eftir Anne Sibert, sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

Greinin heitir Undersized: Could Greenland be the new Iceland? Should it be? og veltir fyrir sér kostum og göllum mismunandi stærðar ríkja í sambandi við sjálfstæði.

Mér finnst spurningin sem Anne setur fram mjög relevant, þ.e. hvort að það sé yfirleitt sniðurgt fyrir smáríki að sækjast eftir sjálfstæði og reka ísólasjónistastefnu, slíkt sé einfaldlega svo kostnaðarsamt.

Reyndar finnst mér að Anne, mætti í greininni líka líta á flexibility-ið sem einkennir lítil samfélög sem kost, en ekki nær eingöngu sem ókost.

Þorvaldur Gylfason benti nú reyndar á það í pistli ekki alls fyrir löngu (sem ég fann ekki aftur) að það væri í sjálfu sér engin góð ástæða fyrir því að telja að Ísland væri of lítið fyrir sjálfstæði sitt, og benti meðal annars á öll þau fjöldamörgu smáríki sem hafa komið og farið í Evrópu undanfarin þúsund ár eða svo. Sú grein virkaði skynsamleg á mig, en í henni benti Þorvaldur á það hvernig skynsamlegt væri að reyna að breyta smæðinni í styrk frekar en helsi (sem smæðin hefur verið hérna lengst af).


3 comments
(Arnaldur)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 17.9.2009

Sveinbjörn

Þetta er absúrd grein.

"Greenland’s progression toward independent statehood is strikingly reminiscent of Iceland’s experience (especially its desire to maintain its own culture and protect its natural resources at the cost of isolation from the rest of the world and its wish to limit its economic relationship with Europe)"

Efnahagshrunið á Íslandi hafði nákvæmlega EKKERT að gera með "desire to maintain its own culture and protect its natural resources at the cost of isolation from the rest of the world and its wish to limit its economic relationship with Europe." Ein elsta ástæðan af hverju við erum svona fucked núna er einmitt út af ævintýri íslenskra fyrirtækja í Evrópu, út af því að við vorum EKKI isolated frá Evrópu.

Prump og frat.

[ Reply ]

Arnaldur at 18.9.2009

Arnaldur

Mér dettur nú reyndar í hug að hún sé frekar að meina sjálfstæðisferlið/baráttuna í sögulegu samhengi.
Það má vel segja að allt frá c.a. 1920 og í raun eiginlega fram til c.a. 1990 hafi Ísland rekið frekar mikla isolationist stefnu og um leið verið að rúnka sjálfu sér á söguskoðun Jónasar frá Hriflu.

En þetta er mjög valid punktur sem þú kemur með. Það var ekki fyrr en allt var opnað hérna að allt fór til fjandans.

[ Reply ]

Arnaldur at 18.9.2009

Arnaldur

Hehehe... Einhvern vegin er ég líka ekki að sjá Grænland fyrir mér sem tough global competitor.

Ég held að það sé frekar langt í að maður sjái Quaqquartoqq International Finance Group Inc.

Samt er þetta ekkert fáránlegra en íslenska ævintýrið ef maður spáir í það.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment