Ég vona að Pressupenninn Barbara Löve sé uppspuni frá rótum.
En jafnvel þótt þessi karakter sé uppspuni, þá verður ekki horft framhjá því að einhver settist niður og ældi þessu út úr hausnum á sér.
Það lagði stæka prumpulykt yfir þegar ég las þennan pistil og mér súrnaði í augunum. Það er einmitt rétt að taka það fram að Barböru Löve verður sennilega best lýst sem súru prumpi.
Eða bara þunnum niðurgangi, kannski.
Úff, talandi um tærustu gerð af steinsmugu. Þetta er einu sinni ekki fyndið, hvaða skinka skrifar svona skýran texta? Það er einhver á Pressunni, hugsanlega Bingi eða einhver annar ófyndinn framsóknarmaður sem fékk þessa hugmynd og framkvæmt hana á eins steingeldan máta sem einungis framsóknarsauður getur afrekað.
Þetta á pottþétt að vera eitthvað grín en því miður er þetta algerlega misheppnað.
Það er einmitt líka einhver "karl-að-þykjast-vera-kona"-bragur á þessum bloggfærslum. Þetta virkar frekar mikið fake.
Ég fæ geðveikt á tilfinnninguna að þetta sé tilraun til að fylla inn í eitthvað Sex and the City void sem er annars á Íslandi. Síðan verður þetta náttúrlega bara svona ofboðslega vont, þótt þetta hafi átt að vera fyndið.
Ég ætla að skjóta á að Hr. Stór komi í næsta pistli.
The password to post a comment is:
(Sindri)