17.9.2009 | Svartsýnismanni misboðið

Michael Hudson tjáir sig mjög reglulega um efnahagsvanda Íslands. Í nýjustu athugasemd sinni spáir hann miklum fólksflótta, þar sem hér sé allt í kúk.

Michael Hudson er farinn að fara nett í taugarnar á mér. Flestir pistlarnir hans virðast allir ganga út á að draga upp eins svartsýna mynd af einstökum þáttum efnahagsvandans og mögulegast er unnt, og skeyta því svo við að Bandaríkjamenn, eða Bretar, eða Hollendingar, eða einhverjir aðrir myndu aldrei láta bjóða sér upp á neitt viðlíka.

Ég hef engan tíma fyrir þetta helvítis kjaftæði.

Aftur á móti vil ég þó telja honum það til tekna að mér þótti þessi grein hans um greislugetu /-skyldu Íslendinga vera frekar góð og skilmerkilega fram sett.


1 comments
(Grétar)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment