Nýleg sálfræðirannsókn á vegum sálfræðinga við UC Santa Barbara og University of British Columbia virðist benda til þess að það að lesa sögur eða horfa á bíómyndir sem hafa undarlega framvindu og fara á skjön við það sem við mætti búast úr raunveruleikanum (sbr. Franz Kafka eða David Lynch) efli færni manns í að greina mynstur og runur.
Ég veit ekki alveg með þessa rannsókn, það kemur ekkert fram hversu margir voru í henni, og þar fyrir utan finnst mér líklegt að fólk sem nennir almennt að lesa Kafka, sé líklegt til að vera sama fólkið og er gott í að leysa svona þrautir.
Að öðru leyti finnst mér þetta ekkert ólíkleg hýpótesa hjá þessum gaurum. Ég man þegar ég las Réttarhöldin á sínum tíma, að þá tapaði ég mér oft í allskyns fabúleringum um söguþráðinn.
Sama má segja um myndir á borð við Lost Highway.
Djövulli er maður þá annras vel settur...
Maður verður s.s. úbergáfaður af að ferðast gegnum Franz Kafka International?
http://www.youtube.com/watch?v=gEyFH-a-XoQ
The password to post a comment is:
(Arnaldur)