23.9.2009 | Book Jerky

kevinbaconhead

Ég rakst á link á þessa annars frekar banal frétt um beikonsneið sem hafði fundist í bókasafnsbók.

Sneiðin hafði sennilegast verið notuð sem bókarmerki, en það sem vakti undrun mína var sú staðreynd að þetta virðist ekki vera einangrað tilfelli.

Samkvæmt síðunni Biblio Buffet er temmilega algengt að bókaverðir uppgötvi beikonsneiðar í bókunum sem þeir fá til baka og gengur fyrirbærið sumstaðar meiraðsegja undir heitinu "Book Jerky". Beikonsneiðar og ostsneiðar virðast vera temmilega algengar.

Annars finnst mér samt eiginlega best af því sem ég nennti að grafa upp í þessum efnum vera bréfmiði sem er minnst á hérna, en á honum ku hafa staðið: "Mommy Have You Told Daddy About the New Baby Yet?"

Hvað er fólk svona annars að nota sem bókamerki heima við?


14 comments
(Sindri)




14 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Grétar at 23.9.2009

Grétar

Það er fáránlega gott að nota mat sem bókarmerki. Ég ætla að gera það við allar (láns-) bækur héðan í frá.

[ Reply ]

Sindri at 24.9.2009

Sindri

Þetta hefur einhvern veginn þróast þannig hjá mér að ég nota alltaf kassakvittunina það er að segja ef bókin er keypt. Ég kaupi yfirleitt þær bækur sem ég les. Í öðrum tilfellum ríf ég bara einhvern nálægan blaðsnepil.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 27.9.2009

Sveinbjörn

Ég er svo mikið ofurmenni að ég geymi blaðsíðutalið í SQL gagnagrunni og keyri SELECT skipun til þess að retreiva staðinn.

[ Reply ]

Sindri at 28.9.2009

Sindri

Hehe :)

Annars er ég að vinna að gagnagrunni sem heldur utan um allar bækur og dvd sem ég á auk ýmissa upplýsinga um titlana. Veit ekki hvort ég leggi í það að klára þetta en það væri gaman.

[ Reply ]

Arnaldur at 28.9.2009

Arnaldur

Ég er mjög hrifinn af þessari bóka/DVD-gagnagrunns hugmynd. Mig fýsir í eitthvað avipað.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 28.9.2009

Sveinbjörn

Delicious Library skilst mér að sé málið. Getur notað iSight myndavélina til þess að skanna barcodes á DVDum og CDum og bókum:

http://delicious-monster.com/

[ Reply ]

Steinn at 24.9.2009

Steinn

Vá hvað fólk er blellað! Shiiiiit!

[ Reply ]

Arnaldur at 28.9.2009

Arnaldur

Ég nota mjög gjarnan gluggapóst sem bókamerki.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 28.9.2009

Sveinbjörn

Já, innheimtur frá bönkum gagnast í lítið annað.

[ Reply ]

Kalli at 28.9.2009

Unknown User

ég fann einu sinni fullt af ljósmyndum í skólabók upp á bókhlöðu, svona myndir úr fríinu frá einhverjum, sólstrandar frí nálægt miðbaug einhvers staðar. Fyndið shit.

Svo fann ég einu sinni cv í notaðri bók sem ég keypti, einhver ung kona sem hafði verið að læra sálfræði í Heidelberg. Mér finnst að öllum notuðum bókum ætti að fylgja cv og æviágrip fyrri eigenda

[ Reply ]

Arnaldur at 1.10.2009

Arnaldur

Talandi um matvæli í bókmenntum. Á Nonnabita gat/getur maður mjög gjarnan séð nonnabáta fyrri lesenda gæjast út á milli blaðsíðna á Andrésblöðunum sem eru á boðstólnum. Reyndar dagblöðunum líka.

[ Reply ]

Grétar at 30.9.2009

Grétar

Kannski er ég bara svona awesome en ég man bara hvar ég er staddur í bókum sem ég er að lesa, og finnst allar bókamerkingar overkill, eða í tilfelli Sveinbjarnar og Sindra: Nördalegt overkill (Nördverkill?(er maður þá að drepa einhvern sem heitir nördver?(fokk hvað ég elska nested sviga)))

[ Reply ]

Arnaldur at 1.10.2009

Arnaldur

Grétar. Þú ert awesome!

Arnaldur likes this.

[ Reply ]

Sindri at 1.10.2009

Sindri

Að elska nested sviga er nördalegt overkill eða nördverkill...eða hvað þú vilt kall'etta. :]


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment