Á facebook er hægt að ganga til liðs við ýmis grúppur og lýsa yfir stuðningi við alls kyns málstaði sem eru manni hjartfólgnir.
Einhverntíman snemma árs 2007 gekk ég til liðs við stuðningsmannahóp munkanna sem buðu herforingjastjórn Búrma byrginn. Þeim varð ekki erindi sem erfiði úr þessu uppsteyti sínu, þrátt fyrir dyggan stuðning minn á facebook.
Þrátt fyrir það er ég enn stuðningsmaður munkanna og nýlega hefur stuðningsmannasíðan tekið kipp og er farin að spamma mig með alls kyns fréttum, bæði merkilegum og lítilvægum um allt milli himins og jarðar (þó allt á einhvern hátt tengt Búrma).
Steininn tók þó úr þegar ég fékk þessa tilkynningu frá síðunni.
Þegar menn eru farnir að svelta sig sökum óréttlætis og 734 manns fagna því, þá er eitthvað ofboðslega rangt í tjáskiptum fólks.
Er þetta ekki bara eins og að vera lítill hundur, kunna bara eitt orð (like) og hafa einungis það val að segja það eða ekki.
Mjög digital, bara af eða á (og meira segja með putta = digit)
On a related note:
Tölvuglæpir ættu kannski að heita stafrán á íslensku og tölvuþrjótar stafræningar.
Venjulegir þrjótar þá hliðræningar?
I'm in over my head.
Vá hvað þú ert yesterday Eiki. Mér datt í hug orðið "stafrán" fyrir löngu síðan, og notaði það um þegar menn notuðu digital myndavélar til þess að taka myndir af fólki í leyfisleysi (gjarnan þegar það var í ölæði) og settu þær á netið.
Já, gott ef ég á ekki mynd af þér einhvers staðar að uppgötva þennan frasa.
Allt á heimasíðunni minni: bay of pics punktur.com
Slogan: Bay of Pics, where pics pay off big.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)