Results for 2009-10

23.10.2009 | Mr. ET

mret

4 comments
(Siggi)



23.10.2009 | Orionid Meteor Shower

Cock! Ég hefði verið til í að ná einhverju af þessari brjáluðu stjörnuhrapsklikkun í himninum. Kannski er ennþá séns að sjá einhverjar restar á næstunni...




23.10.2009 | Goddam Commie-Nazis!

Það er kannski ekki mjög málefnalegt að segja það, en mér finnst Davíð Oddson eiginlega vera frekar mikill bjáni.

En það er allt í lagi. Þessi ritstjórnargrein hans er heldur ekkert málefnaleg.

Davíð Oddson líkir því við nasizma og ástandið í N.-Kóreu, að nokkrir ráðherrar af vinstri-væng stjórnmálanna taki undir "Internasjónallann" á fundi verkalýðshreyfingarinnar í landinu.

(Davíð gerir sér klárlega ekki grein fyrir Frídegi verkamanna 1. maí, og þeim uppákomum sem þá eiga sér stað.)

Hann kýs að gleyma því að ef einhver er í áttina að því að hafa hagað sér eins og Kim-Il Sung, með alræðiskenndir þegar kemur að íslenskum stjórnmálum á undanförnum áratugum, þá er það einmitt hann.

Ofboðslega gott líka, þetta innlegg, að líkja fundi verkalýðshreyfingarinnar við samkomur Nasizta í Bavaríu. Talandi um argumentum ad Hitlerium.

En svona er það. Það þarf að halda þessum "goddam Commie-Nazis" in check!


3 comments
(Steinn)



22.10.2009 | INTRNATIONAL CAPS LOCK DAY!!!

INTRNATIONAL CAPS LOCK DAY!!! ER NÁTULREGA BARRA SNILLLD!!!! :) ;þ


5 comments
(Grétar)



22.10.2009 | Árni Páll í sókn

Ég er alltaf að verða ánægðari og ánægðari með Árna Pál Árnason, félagsmálaráðherra.

Þessi ræðubrot hans hér endurspegla svo algerlega það sem ég hef verið að hugsa um og tauta yfir í lengri tíma.




14.10.2009 | CPH 2009

Annars er kallinn bara farinn í smá frí.

Fólki sem á leið um Kaupmannahöfn yfir helgina er bent á að hafa samband.


3 comments
(Sveinbjörn)



14.10.2009 | Vanhugsuð skattheimta

Einhver Friðjón sem skrifar á Eyjuna er með ágætis hugleiðingu um auknar álögur á áfengi og tóbak.

Friðjón, hverjum ég er nú annars temmilega ósammála hvað flest varðar, (sé eitthvað að marka önnur skrif hans sem ég renndi lauslega yfir,) spyr sig hvort að Ölstofan komi til með að lifa af í þessu harkalega umhverfi.

Nú reyndar efa ég ekki, að ef einhver er í stakk búinn til að standa sig í þessum efnum, þá er það Ölstofan, sem hefur sýnt sig að er vel rekinn og skemmtilegur staður.

Gæjinn er samt með mjög góðan punkt. Hvaða áhrif kemur þetta til með að hafa á veitingahúsarekstur á landinu?

Svo náttúrlega líka hvað það er ósanngjarnt að leggja þessa byrði sérstaklega á okkur sem finnst í lagi að fá okkur í glas af og til. Það geta ekki allir verið heima í fæðingarorlofi að fá sér malt.


3 comments
(Sindri)



9.10.2009 | Kanye vs. Obama

Smá föstudags PS-gleði!

nobamaaccept

9 comments
(Sveinbjörn)



8.10.2009 | PDF- Drama Club

Ég er með 3 pdf-skjöl sem eru í sama sniði (1 A4 blaðsíða), og mig langar til að gera eitt heilsteypt pdf-skjal sem er 3 A4 bls. Sumsé, merge-a þetta shit einhvernvegin...

Any suggestions?


5 comments
(Grétar)



8.10.2009 | Ban Ki-moon

Geðveikt! Ég fékk ótrúlega fínt bréf frá Aðalritara Sameinuðu Þjóðanna, Ban Ki-moon, í dag.

Hann er heitir reyndar ýmist Ban Ki-moon, eða Ban Kin-moon samkvæmt bréfinu.

Ótrúlega nice gaur samt, að senda mér svona fínt, persónulegt tölvubréf. Gott líka að vita til þess að Sameinuðu Þjóðirnar eru að vinna hörðum höndum að því að bæta fólki upp þann skaða sem það hefur orðið fyrir vegna tilstilli óprúttinna svindlara, í stað þess að tækla stærri mál, á borð við hungursneyðir eða annað.

bankinmoon

1 comments
(Sveinbjörn)



7.10.2009 | Gildishlaðin mannréttindi?

Björn Bjarnason segir í dagbókarfærslu sinni í gær, 06.10.2009, orðrétt:

Nafni dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hefur verið breytt í dóms- og mannréttindaráðuneyti. Þessi breyting er ekki til bóta. Orðið mannréttindi er of gildishlaðið til að vera í ráðuneytisheiti. Raunar skilst mér að þetta sé til bráðabirgða, því að mynda eigi innanríkisráðuneyti á rústum dóms- og mannréttindaráðuneytisins.

Birni er greinilega ekki kunnugt um aðild Íslands að Mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, enda ekki þekktur fyrir að virða úrskurði mannréttindadómstóla (sjá nánar) eða styðja við stofnanir á borð við Mannréttindstofu.

Þvert á móti hefur Björn reynt að verja mannréttindabrot fortíðar (sjá nánar), og tekið þátt í að styðja við stríð sem þótti vera á mörkum þess að teljast ásættanlegt eða löglegt skv. Sameinuðu Þjóðunum.

Björn sannar það enn og aftur að hann er ekki maður, heldur róboti sem getur einvörðungu hugsað í binary-opositions og alls ekki um abstract hluti.

KILL ALL HUMANS!!!

Svo finnst mér reyndar spurning Silju Báru um ummæli Björns um ráðuneytið sjálft segja það allt:

Lokaorð dóms- og kirkjumálaráðherrans fyrrverandi vekja svo allt aðra spurningu. Skildi hann svo illa við ráðuneytið að innanríkisráðuneytið ætlaða þurfi að byggja á rústum þess?


---Viðbót---

Það er reyndar líka nokkuð athyglisvert að Egill Helgason tekur hér sérstaklega til orða Björns. En hérna þykja honum mannréttindabrot ekkert tiltökumál, svo lengi sem þau gerðust fyrir löngu síðan.


3 comments
(Arnaldur)



7.10.2009 | Milkshake

Fréttamynd ársins er klárlega frá þessum mótmælum mjólkurbænda í Brussel í gær.

milkprotest

2 comments
(Grétar)



7.10.2009 | Bad Writing Contest

Árið 2005 skrifaði ég um afspyrnu vondan texta sem ég hafði rekist á í fræðiriti og olli mér miklu hugarangri.

Sveinbjörn benti mér á, mér til mikillar gleði, að ég var ekki einn á þeirri skoðun að höfundur textans, Stephen Tyler væri sennilega með því versta sem gerðist á prentuðu máli. En sama bók og brotið var úr, hafði einmitt uppskorið tilnefningu til hinna verstu skrifa árið 1997 á þessari síðu.




2.10.2009 | Operation Iraqi Liberation!

Í kjölfar samræðna um stórkostlega undarlegt lán upp á 2000 milljarða frá Norðmönnum, sem Framsóknarmenn virðist hafa dreymt upp í einhverju móki, bar norska Oljefondet á gómana.

Norski olíuiðnaðurinn og hvernig Norðmenn höfðu skipulagt olíuvinnslu sína fylgdu að sjálfsögðu fast á hælana og mér datt þá samstundis í hug grein sem ég las fyrir nokkru í Financial Times. Greinin var um Farouk al-Kasim, en hann er lítt þekktur Íraki sem er búsettur ásamt norskri konu sinni í Stavanger í Noregi. Það sem fæstir vita er að þessi Farouk er að mörgu leyti lykilmaður í því að olíumál Norðmanna þróuðust á þann hátt sem þau gerðu.

Sagan af því er eiginlega ævintýraleg og ég hvet fólk sem hefur áhuga á mögulegri olíuvinnslu hér við land að kíkja á þetta.


2 comments
(Steinn)



2.10.2009 | Copenhagen 2009 Tour

Keypti mér miða til Kaupmannahafnar í gær. Verð loungin' þarna 15.-18. okt.

Geðveikt, ég hef ekki farið þarna í að verða 2 ár.


2 comments
(Arnaldur)



2.10.2009 | Any Colour You Like

pinkfloyd

2 comments
(Grétar)



2.10.2009 | Manga Kampf

mangakampf

Mig langar sjúklega í svona manga útgáfu af Mein Kampf.

Árni, geturðu ekki "hook a nigga up"?

Væri reyndar líka og jafnvel meira til í manga útgáfuna af Das Kapital eftir Marx.


4 comments
(Sveinbjörn)



1.10.2009 | Can Sleep With

Fyrir þá sem eru í vafa...

Vefurinn cansleepwith.com leggur fólki línurnar í því hvað telst samfélagslega og siðferðislega ásættanlegt.




1.10.2009 | Adam Rainer - Risasmár

Þetta er hellað. Var bent á þennan gaur, Adam Rainer, sem afrekaði það á lífsleið sinni að vera bæði dvergur og risi á fullorðinsárum.


3 comments
(Arnaldur)