Björn Bjarnason segir í dagbókarfærslu sinni í gær, 06.10.2009, orðrétt:
Nafni dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hefur verið breytt í dóms- og mannréttindaráðuneyti. Þessi breyting er ekki til bóta. Orðið mannréttindi er of gildishlaðið til að vera í ráðuneytisheiti. Raunar skilst mér að þetta sé til bráðabirgða, því að mynda eigi innanríkisráðuneyti á rústum dóms- og mannréttindaráðuneytisins.
Birni er greinilega ekki kunnugt um aðild Íslands að Mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, enda ekki þekktur fyrir að virða úrskurði mannréttindadómstóla (sjá nánar) eða styðja við stofnanir á borð við Mannréttindstofu.
Þvert á móti hefur Björn reynt að verja mannréttindabrot fortíðar (sjá nánar), og tekið þátt í að styðja við stríð sem þótti vera á mörkum þess að teljast ásættanlegt eða löglegt skv. Sameinuðu Þjóðunum.
Björn sannar það enn og aftur að hann er ekki maður, heldur róboti sem getur einvörðungu hugsað í binary-opositions og alls ekki um abstract hluti.
KILL ALL HUMANS!!!
Svo finnst mér reyndar spurning Silju Báru um ummæli Björns um ráðuneytið sjálft segja það allt:
Lokaorð dóms- og kirkjumálaráðherrans fyrrverandi vekja svo allt aðra spurningu. Skildi hann svo illa við ráðuneytið að innanríkisráðuneytið ætlaða þurfi að byggja á rústum þess?
---Viðbót---
Það er reyndar líka nokkuð athyglisvert að Egill Helgason tekur hér sérstaklega til orða Björns. En hérna þykja honum mannréttindabrot ekkert tiltökumál, svo lengi sem þau gerðust fyrir löngu síðan.
Maðurinn var jólasveinn sem menntamálaráðherra, jólasveinn sem dómsmálaráðherra.
Af hverju í andskotanum hlustar nokkur maður enn á þennan gamla kaldastríðsvitleysing?
Það er bara rétt að halda þessu til haga.
http://www.arnaldur.org/images/bjornmannrettindihighlight.jpg
The password to post a comment is:
(Arnaldur)