Einhver Friðjón sem skrifar á Eyjuna er með ágætis hugleiðingu um auknar álögur á áfengi og tóbak.
Friðjón, hverjum ég er nú annars temmilega ósammála hvað flest varðar, (sé eitthvað að marka önnur skrif hans sem ég renndi lauslega yfir,) spyr sig hvort að Ölstofan komi til með að lifa af í þessu harkalega umhverfi.
Nú reyndar efa ég ekki, að ef einhver er í stakk búinn til að standa sig í þessum efnum, þá er það Ölstofan, sem hefur sýnt sig að er vel rekinn og skemmtilegur staður.
Gæjinn er samt með mjög góðan punkt. Hvaða áhrif kemur þetta til með að hafa á veitingahúsarekstur á landinu?
Svo náttúrlega líka hvað það er ósanngjarnt að leggja þessa byrði sérstaklega á okkur sem finnst í lagi að fá okkur í glas af og til. Það geta ekki allir verið heima í fæðingarorlofi að fá sér malt.
Þetta hefur bara í för með sér að maður er sparsamari í drykkjunni, drekkur heima og kaupir ekki í bænum, og drekkur stíft til þess að nýta booze-ið.
Áfengi hefur alltaf verið óþolandi dýrt á Íslandi, þetta breytir nú ekki miklu, held ég.

The password to post a comment is:
(Sindri)