Það er kannski ekki mjög málefnalegt að segja það, en mér finnst Davíð Oddson eiginlega vera frekar mikill bjáni.
En það er allt í lagi. Þessi ritstjórnargrein hans er heldur ekkert málefnaleg.
Davíð Oddson líkir því við nasizma og ástandið í N.-Kóreu, að nokkrir ráðherrar af vinstri-væng stjórnmálanna taki undir "Internasjónallann" á fundi verkalýðshreyfingarinnar í landinu.
(Davíð gerir sér klárlega ekki grein fyrir Frídegi verkamanna 1. maí, og þeim uppákomum sem þá eiga sér stað.)
Hann kýs að gleyma því að ef einhver er í áttina að því að hafa hagað sér eins og Kim-Il Sung, með alræðiskenndir þegar kemur að íslenskum stjórnmálum á undanförnum áratugum, þá er það einmitt hann.
Ofboðslega gott líka, þetta innlegg, að líkja fundi verkalýðshreyfingarinnar við samkomur Nasizta í Bavaríu. Talandi um argumentum ad Hitlerium.
En svona er það. Það þarf að halda þessum "goddam Commie-Nazis" in check!
Ég ætla meira að segja að ganga svo langt að segja að Argumentum ad hitlerum sé eitt algengasta bragðið í stjórnmálum um þessar mundir.
Ég freistast stundum til þess að lesa hið ótrúlega ómálefnalega athugasemdakerfi á Eyjunni. Þar hrópast menn á og eru annað hvort fasistar eða kommúnistar.
The password to post a comment is:
(Steinn)