Results for 2009-11

26.11.2009 | Lingerie Football League


11 comments
(Grétar)



25.11.2009 | Arion plága eða Kúkþing banki

arionbanki

Kaupþing hefur nú skipt um nafn og merki og kallar sig Arion banka.

Þetta er nokkuð athyglisvert í ljósi þess að hér er þegar annað skítugt fjármálafyrirtæki sem kennir sig við slímugar skepnur (snigla), og heitir Arion. En það virðist vera einhverskonar verðbréfabraskmiðstöð.

Annars heyrði ég einmitt ágætis skýringu á því afhverju þetta Arion nafn var valið. Það hlyti að vera vísun í Arion lucitanicus, eða spánarsnigil.

Náttúrufræðistofnun Íslands segir um Arion (lucitanicus):

"...er alræmd plága í nágrannalöndum okkar, en fannst í fyrsta skipti hér á landi haustið 2003... Landnám [Arion (lucitanicus)] hér á landi er slæm tíðindi. Full ástæða er til að mæta þeim af hörku."

Það hlaut að vera að hér væri um að ræða vísun í ömurlegt sníkjudýr sem étur uppskeru harðvinnandi fólks.

Nú ætla ég að reyna að skipta aftur um banka og komast í burt frá Kaupþingi eitt skipti fyrir öll. Það verður athyglisvert að vita hvort þeim tekst einhvernvegin að gleypa líka næsta banka sem ég skipti yfir til.

Manni er farið að líða eins og Michael Corleone. "Just when I thought I was out... they pull me back in. "


10 comments
(Arnaldur)



16.11.2009 | EU Vampires!

euvampires

Þessi auglýsing var á imdb.com áðan.

Mér finnst nú nógu mikil innbyggð mótsögn í því að tala um "sexy Goth", en látum það svo sem vera. "To each man his own" og allt það...

Hins vegar þykir mér það furðulega magnað og athyglisvert konsept að auglýsa vampírur frá Evrópusambandinu sem einhvern ofboðslega sexý og fýsilegan kost.

Hvað hafa EU-Vampírur fram yfir aðrar vampírur, ef maður er á annað borð hneigður til vampíra?


2 comments
(Steinn)



16.11.2009 | Ronald McDavíð... eða eitthvað... you get the point...

Smá PS á annars rólegum mánudegi.

Mér datt þetta allt í einu í hug og ákvað að smella þessu saman. Þetta er ef til vill aðeins of seint, en mér þótti þetta heldur góð hugmynd og tímdi ekki alveg að sleppa henni þó að hún hefði komið 2 vikum of seint.

davidmcdonald1

davidmcdonaldarrested

2 comments
(Sindri)



16.11.2009 | Teiknimyndafígúran Davíð Oddsson

davidviggisigga

Ég rakst á bloggsíðu, sem er belgísk. Síðan gerir íslenska tónlist að umfjöllunarefni sínu, en það er ekki það sem vakti athygli mína. Í færslunni sem ég hef linkað á hérna er síðuhöfundur búinn að taka til nokkra ramma úr teiknimyndasögunum um Sigga og Viggu, þar sem Davíð Oddsson kemur fyrir sem borgarstjóri Reykjavíkur.

Í sögunni heldur einn karakterinn greinilega að Davíð sé pikkóló og biður hann að bera töskurnar sínar.

Kannski eitthvað til í því. Allavega var hann nógu iðinn við að greiða leið fjármálaglæpona og koma byrðum þeirra annað...


2 comments
(Arnaldur)



13.11.2009 | Emo-Goth

gothemo1


gothemu1



13.11.2009 | SMIT vill spara með því að leggja niður mennta- og heilbrigðiskerfi ríkisins

SMIT

Samband manna í teinóttu leggur til að menntakerfi ríkisins verði lagt niður og Háskóli Íslands seldur. Þannig verði hægt að spara fjármuni og sleppa því að hækka skatta. Á meðal stofnana sem SMIT vill að fái engin fjárframlög frá ríkinu eru leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar og háskólar, hverskyns rannsóknarsjóðir og Ríkisútvarpið. Þá verði einnig skrúfað fyrir fjárframlög til heilbrigðiskerfisins.

Mennirnir í teinóttu kalla tillögur sínar “Raunhæf fjárlög án skattahækkana”. Skýrslan verður send öllum þingmönnum á Alþingi og afhendi Búri Marðarson, formaður SMIT, Guðbjarti Hannessyni, formanni fjárlaganefndar Alþingis, fyrsta eintak skýrslunnar í Alþingishúsinu í dag.

SMIT vill að SUS biðjist afsökunar á fyrri tillögum

SMIT fagnar efnahagstillögum SUS en telur jafnframt að þar sé gengið alltof skammt í átt til lækkunar ríkisútgjalda. Þá telur SMIT að SUS verði að biðjast afsökunar á sínum þætti í því að halda aftur á niðurskurði ríkisútgjalda á komandi árum.

Stjórn SMIT telur að vel sé hægt að spara í rekstri ríkisins þannig að hægt verði að ná fram raunhæfum fjárlögum án skattahækkana og án þess að það komi verulega niður á fólkinu í landinu. Telur SMIT að niðurskurður sé eina færa leiðin fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu sem hafa ekki svigrúm til aukinna skattgreiðslna.

Ríkisrekstur að mestu lagður niður

Niðurskurðartillögur SMIT eru róttækar og er ljóst að mennta- og heilbrigðiskerfi á ekki upp á pallborðið hjá teinóttu mönnunum. Að þeirra mati á ekki að lækka framlög til stofnana, einsog gjarnan er gert á niðurskurðartímum, heldur einfaldlega að leggja þau alfarið af.

„Hvað menntakerfi Íslands varðar telur SMIT það ekki hlutverk hins opinbera að verja skattfé almennings til menntunar fólks. Heyra má á máli námsmanna hér á landi að slík menntun skili sér í auknum tekjum þessa einstaklinga og því telur SMIT að námsmenn skuli bera bæði kostnað og njóti hagnaðar af slíkri menntun.“


3 comments
(Grétar)