Samband manna í teinóttu leggur til að menntakerfi ríkisins verði lagt niður og Háskóli Íslands seldur. Þannig verði hægt að spara fjármuni og sleppa því að hækka skatta. Á meðal stofnana sem SMIT vill að fái engin fjárframlög frá ríkinu eru leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar og háskólar, hverskyns rannsóknarsjóðir og Ríkisútvarpið. Þá verði einnig skrúfað fyrir fjárframlög til heilbrigðiskerfisins.
Mennirnir í teinóttu kalla tillögur sínar Raunhæf fjárlög án skattahækkana. Skýrslan verður send öllum þingmönnum á Alþingi og afhendi Búri Marðarson, formaður SMIT, Guðbjarti Hannessyni, formanni fjárlaganefndar Alþingis, fyrsta eintak skýrslunnar í Alþingishúsinu í dag.
SMIT fagnar efnahagstillögum SUS en telur jafnframt að þar sé gengið alltof skammt í átt til lækkunar ríkisútgjalda. Þá telur SMIT að SUS verði að biðjast afsökunar á sínum þætti í því að halda aftur á niðurskurði ríkisútgjalda á komandi árum.
Stjórn SMIT telur að vel sé hægt að spara í rekstri ríkisins þannig að hægt verði að ná fram raunhæfum fjárlögum án skattahækkana og án þess að það komi verulega niður á fólkinu í landinu. Telur SMIT að niðurskurður sé eina færa leiðin fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu sem hafa ekki svigrúm til aukinna skattgreiðslna.
Niðurskurðartillögur SMIT eru róttækar og er ljóst að mennta- og heilbrigðiskerfi á ekki upp á pallborðið hjá teinóttu mönnunum. Að þeirra mati á ekki að lækka framlög til stofnana, einsog gjarnan er gert á niðurskurðartímum, heldur einfaldlega að leggja þau alfarið af.
Hvað menntakerfi Íslands varðar telur SMIT það ekki hlutverk hins opinbera að verja skattfé almennings til menntunar fólks. Heyra má á máli námsmanna hér á landi að slík menntun skili sér í auknum tekjum þessa einstaklinga og því telur SMIT að námsmenn skuli bera bæði kostnað og njóti hagnaðar af slíkri menntun.
Ég er nú helst á því að leggja niður lögregluna. Fæ ekki betur séð en að slík þjónusta skili sér í auknum tekjum einstaklinga sem njóta hennar og því tel ég að þeir skuli bera kostnaðinn.
The password to post a comment is:
(Grétar)