Ég rakst á bloggsíðu, sem er belgísk. Síðan gerir íslenska tónlist að umfjöllunarefni sínu, en það er ekki það sem vakti athygli mína. Í færslunni sem ég hef linkað á hérna er síðuhöfundur búinn að taka til nokkra ramma úr teiknimyndasögunum um Sigga og Viggu, þar sem Davíð Oddsson kemur fyrir sem borgarstjóri Reykjavíkur.
Í sögunni heldur einn karakterinn greinilega að Davíð sé pikkóló og biður hann að bera töskurnar sínar.
Kannski eitthvað til í því. Allavega var hann nógu iðinn við að greiða leið fjármálaglæpona og koma byrðum þeirra annað...
(Arnaldur)