25.11.2009 | Arion plága eða Kúkþing banki

arionbanki

Kaupþing hefur nú skipt um nafn og merki og kallar sig Arion banka.

Þetta er nokkuð athyglisvert í ljósi þess að hér er þegar annað skítugt fjármálafyrirtæki sem kennir sig við slímugar skepnur (snigla), og heitir Arion. En það virðist vera einhverskonar verðbréfabraskmiðstöð.

Annars heyrði ég einmitt ágætis skýringu á því afhverju þetta Arion nafn var valið. Það hlyti að vera vísun í Arion lucitanicus, eða spánarsnigil.

Náttúrufræðistofnun Íslands segir um Arion (lucitanicus):

"...er alræmd plága í nágrannalöndum okkar, en fannst í fyrsta skipti hér á landi haustið 2003... Landnám [Arion (lucitanicus)] hér á landi er slæm tíðindi. Full ástæða er til að mæta þeim af hörku."

Það hlaut að vera að hér væri um að ræða vísun í ömurlegt sníkjudýr sem étur uppskeru harðvinnandi fólks.

Nú ætla ég að reyna að skipta aftur um banka og komast í burt frá Kaupþingi eitt skipti fyrir öll. Það verður athyglisvert að vita hvort þeim tekst einhvernvegin að gleypa líka næsta banka sem ég skipti yfir til.

Manni er farið að líða eins og Michael Corleone. "Just when I thought I was out... they pull me back in. "


10 comments
(Arnaldur)




10 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

gummi at 25.11.2009

gummi

Þeir stela öllu, lógóið er víst tekið úr mynstri gólfsins í Landsbankanum Austurstræti.

[ Reply ]

Einar Örn Gíslason at 25.11.2009

Unknown User

Hitt Arion var þegar í eigu Kaupþings

[ Reply ]

Arnaldur at 25.11.2009

Arnaldur

Nefna þeir alltaf bankann sinn eftir minnsta og skítugasta fjármálafyrirtækinu sem þeir eiga?

[ Reply ]

Sveinbjörn at 25.11.2009

Sveinbjörn

Já, dawg, það er bara verst að hinir bankarnir eru allir jafn ömurlegir og fucked up...

[ Reply ]

Arnaldur at 25.11.2009

Arnaldur

Wordytron!

[ Reply ]

Einar Örn Gíslason at 25.11.2009

Unknown User

Þeir hefðu átt að fara alla leið og taka upp nafn eins og Arion Brotherhood

[ Reply ]

Arnaldur at 25.11.2009

Arnaldur

Classic!

[ Reply ]

Arnaldur at 25.11.2009

Arnaldur

Allir þessir sparnaðaráhugasömu ný-nazistar eru náttúrulega væntanlega frekar untapped markaður hingað til.

[ Reply ]

Doddi at 28.11.2009

Doddi

Eru öll fjármálafyrirtæki skítug by default?

[ Reply ]

Arnaldur at 30.11.2009

Arnaldur

Já, meira og minna. Er það ekki?


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment