Results for 2009-12

28.12.2009 | "Laughing all the way to the bank!"

Var að taka til í inboxinu mínu þegar ég fann þennan gamla pistil þar. Ég gat eiginlega ekki stillt mig um að pósta þessu, þó þetta sé nú orðið frekar gamalt.

icesavegrein

Það er eitthvað svo magnað að hann skuli, samkvæmt þessari lýsingu, hafa verið hlæjandi að tékka á þessum innlánum.


1 comments
(Sindri)



28.12.2009 | Fjármálaóreiða vinstri manna

Þetta er snilld. Hvernig er hægt að vera svona diluted og blindur?




18.12.2009 | Smá deleringar um "Þjóðaratkvæðagreiðslu" Eyjunnar

Silfur Egils stendur undir nafni í nýlegri færslu um "Þjóðaratkvæðagreiðslu Eyjunnar".

Egill vísar þar til skoðanakönnunar sem var framkvæmd á þann hátt að öllum sem missa svefn yfir Icesave þessa dagana var boðið að greiða atkvæði um samning sem þeir hafa yfirmáta takmarkaða þekkingu á í gegnum heimabankann sinn.

1. árs nemi í aðferðafræði sér þarna strax hversu dæmt þetta er til að gefa skakka niðurstöðu.

Allavega. Tæplega 7.500 áhugamenn um Icesave greiddu þarna atkvæði í því sem Egill kallar nú þjóðarkosningu. Einhverjum kynni að finnast það sjálfhverft, en látum það liggja milli hluta. Eyju-kommenterar virðast hafa haft lítinn áhuga á að standa við fjárhagslegar skuldbindingar Íslands erlendis en um 70% þeirra felldi Icesave samninginn í núverandi mynd í þessari "þjóðarkosningu".

Egill nýtir tækifærið og talar linnulaust um þjóðarkosningu, og að forsetinn verði að hafna undirskrift á Icesave lögum ef hann vilji vera samkvæmur sjálfum sér. Auk þess talar Egill eins og ríkisstjórnin sé fallin út frá niðurstöðum "Þjóðarkosninganna".

Hvernig mönnum dettur yfirleitt í hug að hleypa því inn í umræðuna að Icesave og fjölmiðlafrumvarpið séu sambærileg mál, þykir mér óskiljanlegt. Og dettur mér helst í hug að Egill haldi þessari skoðun fram til að kynda undir glumdroða í ummælakerfi sínu.

Persónulega hef ég enga sérstaka skoðun á fjölmiðlafrumvarpinu, en undrast að engin breytt útgáfa lagafrumvarpsins hafi verið lögð fyrir þingið þegar fór sem fór. Hitt er víst að frumvarpið var illa unnið, virtist sérsniðið til þess eins að svala einhverskonar rætnum hefndarþorsta eins manns á Alþingi.

En fjölmiðlafrumvarpið var innanríkismál. Innanríkismál sem varðaði á engan hátt fjárhagslegar skuldbindingar íslenska ríkisins erlendis.

Til að það sé á hreinu, þá er Icesave aftur á móti utanríkismál, sem varðar fjárhagslegar skuldbindingar Íslands við tvö helstu viðskiptalönd sín.

Til að setja það í samhengi, þá er þetta ekki ósvipað því, að reka bakarí sem er komið óþægilega nærri því að fara á hausinn. Þó ertu með yfirdrátt sem þú getur notað til að redda þér fyrir horn, og svo eru 2 aðilar sem versla gríðarlega mikið við þig, og þeirra viðskipti ein og sér fara langt með að dekka vaxtakostnaðinn þinn. Þá tekur þú upp á því að stela frá þessum 2 helstu viðskiptavinum þínum, sem jafnframt eru með þeim fáu sem að greiða þér með nothæfum gjaldmiðlum. Viðskiptavinir þínir eru ekki ánægðir með þessa framkomu, en vilja halda áfram versluninni, sért þú tilbúinn að bæta tjónið sem þú ollir þeim. 70% Eyju-kommentera senda þessum mönnum puttan og horfa á bakaríið sligast undan himinháum óhagstæðum lánum.

Nú er ég svo ákaflega hlynntur sem mestu og beinustu lýðræði sem kostur er á, en viljum við svo virkilega að fólk sem skilur ekki muninn á innistæðureikningum og peningamarkaðssjóðum og grundvöll nútímabankakerfis almennt, sé að greiða gildandi atkvæði um slík mál?


3 comments
(Sindri)



17.12.2009 | Google ascii

Fyndið að sjá hvað gerist fyrir google-lógóið þegar maður leitar að ascii art.

googleascii



17.12.2009 | Jólafálkinn

Jólaleg stemning í áróðursplaggati SUS fyrir jólahlaðborð. Hvern langar ekki á jólahlaðborð með hvasseygum fálkum frjálshyggjunnar? (Þessi jólasveinahúfa er sko ekkert að hjálpa, kommon.)

jolafalkinn
Er jólafálkinn nýji jólakötturinn?

2 comments
(Grétar)



16.12.2009 | Um raungildisendurmat Golf-straumsins

Ég rakst á þessa mjög svo athyglisverðu grein um áhrif Golf-straumsins á hita og veðurfar í Evrópu.

Í greininni kemur fram að Golf-straumurinn hefur ekki jafn mikið vægi og honum er gjarnan gefið í tengslum við að halda hinu milda veðurfari Evrópu stöðugu.

Sá misskilningur er víst allt frá árinu 1855 og hefur öðlast sjálfstætt líf sem einskonar viðtekinn sannleikur.

Greinarhöfundurinn, sem er einhverskonar rannsóknarveðurfræðingur, færir fyrir þessu mjög góð rök sem hann setur fram á skiljanlegan hátt.

Samkvæmt rannsóknum hans (og reyndar ótengdum rannsóknum annarra sem hann minnist á) virðast ákveðnir eðlisfræðilegir þættir sem stjórna vindáttum, og því hvernig hlutir í mismunandi fösum hitna, skipta mun meira máli í þessu samhengi. Áhrif Golf-straumsins séu því í raun mjög hverfandi ein og sér.

Án þess að ég skilji það sem svo að höfundurinn sé eitthvað að gera lítið úr því að menn hagi sér á ábyrgan hátt gagnvart umhverfinu, þá finnst mér nokkuð til í niðurlagi hans um dómsdagsspámenn og þátt fjölmiðla- og vísindamanna í að viðhalda aldagömlum misskilningi.




9.12.2009 | Eeeexcellent!

excellent1

excellent2

5 comments
(Steinn)



9.12.2009 | Jesú er með þetta...




9.12.2009 | Peningamótmæli

iranian banknotes i1

Þetta þótti mér athyglisvert að sjá. Íranskir mótmælendur eru farnir að koma skilaboðum sínum á framfæri með því að skrifa og stipla á peningaseðla.

Stjórnvöld reyndu víst upphaflega að eyða seðlunum, en það hefur ekki haft árangur og nú flæða skilaboð mótmælenda um íranska hagkerfið.




2.12.2009 | Hinar ýmsu birtingarmyndir hamfara Björns

Maður les oft allskonar vitleysisskrif tengd Icesave eða hruninu, en ég eiginlega varð kjaftstopp í dag þegar ég las dagbókarskrif Björns Bjarnasonar frá Fullveldisdeginum áðan, og þó er hann nú alþekkt skoffín.

Veruleikafirring þessa manns er eiginlega aðdáunarverð, sem og það hvernig honum hefur tekist að sannfæra sjálfan sig um það að hans hlutur í efnahagsstjórn Íslands sé enginn, líkt og "Eyðimerkurhrópandi Íslands" Hr. Davíð Oddson.

Fyrst byrjar Björn á því að vísa í ævisögu séra Sigurðar Stefánssonar. Þetta gerir hann til þess að benda á sambærileika þeirra tíma sem við lifum nú, og annarra tíma sem á undan eru gengnir og er orðið nokkuð vinsælt stílbragð undanfarið. Þetta gera menn gjarnan til að reyna að sýna fram á að Hrunið hafi nú verið fyrirséð, og gefa í skyn að þeir hafi jafnframt verið með það á hreinu. Björn ákveður hinsvegar þarna að slá sig til einhverskonar alþýðuriddara og breytist eiginlega í nokkurskonar hálfgildings-kommúnista með andstyggð á peningahyggju og mælir líkamlegu erfiði bót:

"Á sama tíma hafi óhóf og alls konar bruðl og reiðileysi aukist hjá þorra fólks, einkum þó í Reykjavík. Fólk hafi orðið því nautnasjúkara og frábitnara stöðugri líkamlegri vinnu því meiri peninga, sem það hafði handa á milli. Sá hafi þótt mestur, sem gat fengið sem mest kaup fyrir sem minnsta vinnu."

og

"Nýjar verslanir spruttu upp sem arfi í vætutíð. Hvarf fjöldi manna að því ráði frá nytsamlegri framleiðslu og af lítilli forsjá og litlu verslunarviti eða þekkingu. Þessir nýgræðingar höfðu eintóman óþarfa á boðstólum, sem þeir prönguðu út við okurverði í kaupfíkinn almenning."

Að þessu loknu snýr hann sér að Icesave og fyrirhuguðum skattahækkunum, og verður þá hálf-nazískur í einangrunarstefnu og fullveldishugsjónum. Á sama tíma er hann ofur frjálshyggur þegar kemur að skattamálum, því auðvitað eiga einstaklingar ekki að borga fyrir skuldbindingar ríkisins, sem þeir eru þó hluti af, með sköttum sínum.

Ennfremur telur Björn enga ástæðu til þess að skoða aðdraganda Icesavemálsins, enda er slíkt pjatt bara fyrir vitleysinga og kommúnista.

"Icesave-samningarnir við Breta og Hollendinga og meðferð þeirra í höndum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar er alvarlegasta glappaskot íslenskra stjórnvalda í samskiptum við aðrar þjóðir frá 1918. Ástæðulaust er að deila um ástæður eða aðdraganda samninganna."

Að lokum er Björn orðinn anarkisti, og boðar að ríkið með sinni eldrauðu skattakrumlu og óþolandi milliríkja-diplómasíu, sé versti óvinur fólksins.

"1. desember 2009, stendur íslenska þjóðin í þeim sporum, að ríkisstjórn Íslands er helsti óvinur þess, að þjóðin haldi reisn og efnalegum styrk inn á við og út á við, svo að ekki sé minnst á fullveldið sjálft."

Mig minnti nú að þetta væri ennþá, eftir allt saman lýðræðisríki, og að Björn hefði nú notið þess ansi hreint ágætlega áður en hann og vinir hans klessukeyrðu eimreiðina.


3 comments
(Arnaldur)