16.12.2009 | Um raungildisendurmat Golf-straumsins

Ég rakst á þessa mjög svo athyglisverðu grein um áhrif Golf-straumsins á hita og veðurfar í Evrópu.

Í greininni kemur fram að Golf-straumurinn hefur ekki jafn mikið vægi og honum er gjarnan gefið í tengslum við að halda hinu milda veðurfari Evrópu stöðugu.

Sá misskilningur er víst allt frá árinu 1855 og hefur öðlast sjálfstætt líf sem einskonar viðtekinn sannleikur.

Greinarhöfundurinn, sem er einhverskonar rannsóknarveðurfræðingur, færir fyrir þessu mjög góð rök sem hann setur fram á skiljanlegan hátt.

Samkvæmt rannsóknum hans (og reyndar ótengdum rannsóknum annarra sem hann minnist á) virðast ákveðnir eðlisfræðilegir þættir sem stjórna vindáttum, og því hvernig hlutir í mismunandi fösum hitna, skipta mun meira máli í þessu samhengi. Áhrif Golf-straumsins séu því í raun mjög hverfandi ein og sér.

Án þess að ég skilji það sem svo að höfundurinn sé eitthvað að gera lítið úr því að menn hagi sér á ábyrgan hátt gagnvart umhverfinu, þá finnst mér nokkuð til í niðurlagi hans um dómsdagsspámenn og þátt fjölmiðla- og vísindamanna í að viðhalda aldagömlum misskilningi.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment