Header
29.01.2010 | J.D. Salinger látinn
salinger5article

RIthöfundurinn J.D. Salinger lést á dögunum.

Sjálfur las ég einu virkilega frægu bókina hans, The Catcher in the Rye um unglingsstrákinn Holden Caulfield, þegar ég var svona 18 ára, og þótti mikið til koma. Hef af og til verið hugsað til bókarinnar síðan þegar ég hef fundið mig í skrítnum eða erfiðum félagslegum aðstæðum.

Þess má geta að bókin hans er líka ofboðslega fræg fyrir þær sakir að Mark Chapman, morðingi John Lennon var með hana á sér þegar hann framdi ódæðið, og hafa menn lesið mismikið og misviturlegt í það.

Annars er hérna frekar skondin umfjöllun um andlát Salinger á The Onion.

29.01.2010 | Meat bubbles

Mér varð illt í augunum og fór að svima eftir að ég var búinn að spila kjötspilið á heimasíðu tímaritsins BEEF! í um 4 klst.

Það er langt síðan ég varð svona háður einhverjum tölvuleik.

Leikurinn er afbrigði af hinum klassíska tölvuleik Bubbles þar sem búið er að skipta út blöðrunum fyrir alls kyns kjötafurðir.

Ég er orðinn þeirrar skoðunar að leikurinn svindli. Það næsta sem ég hef komist því að klára hann var þegar ég átti sjö kjötstykki eftir. Þá skyndilega byrjuðu línurnar að hrannast niður aftur.

Annars er ég nú sæmilega góður í Bubbles almennt, og klára hann mjög gjarnan með lítilli fyrirhöfn.

Maður er með svo ofboðslega fína spatial orientation, sjáiði til.

29.01.2010 | Strákarnir okkar vs. þrælarnir okkar

Fór til tannlæknis í morgun og var mættur full snemma fyrir uppgefinn tíma.

Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af læknabiðstofum, eða því að reyna að gera mér upp áhuga á 2 ára gömlu Séð og Heyrt blaði, þannig að ég sat úti í bíl og reyndi að hlusta á útvarpið þar til kæmi að tímanum mínum.

Útvarpið reyndist bara ekkert mikið skárra í þetta sinn.

Ég flakkaði á milli rása, sem voru hver annarri óáhugaverðari, þar til ég kom að FM 95,7, en þar voru þrír menn að ræða um handbolta, sem virkaði svona illskárst á mig.

Þetta var rangt mat hjá mér.

Umræðurnar voru eiginlega alveg hræðilegar:

-En afhverju getum við ekki unnið Frakka?

-Við getum alveg unnið Frakka!

-Við höfum ALDREI unnið Frakka!

-Jú! Við höfum víst unnið Frakka!

-Höfum við aldrei unnið Frakka?

-Jú, fyrir 3 árum, held ég.

-Jaaaááá...

-Já, ok.

-Já.

-Það væri nú samt verst held ég að tapa leik... tapa leik á móti Pólverjunum, held ég.

-Hva'! Já gömlu þrælahöldurunum, já... nei... ég meina... þrælunum... ég meina... þrælunum okkar?

-Hehehe... Já, ég veit nú ekki alveg með það svosem, en það er alltaf eitthvað...

-...eitthvað með þessa Pólverja.



Hvað get ég sagt?

27.01.2010 | Google fail
hungalthinghighlight
26.01.2010 | Gítarkvenhetjur
pj harvey1

Í tengslum við fyrri færslu mína um Gítarhetju-plakat, benti Þórdís réttilega á að ekki var neinum konum fyrir að fara á plakatinu. Eitthvað sem ég hafði ekki veitt neinni sérstakri eftirtekt sjálfur, en vakti mig til umhugsunar þegar hún minntist á það.

Í kjölfarið reyndi ég að telja upp einhverjar kvenkyns gítarhetjur, (með áherslu á hetjur,) sem væru eftirminnilegar, en greip hvarvetna í tómt.

Eftir þó nokkra umhugsun, detta mér eiginlega bara þrjár konur, sem hafa eitthvað með gítara að gera, í hug.

Joni Mitchell, PJ Harvey, og Aimee Mann.

Reyndar er ég ekki einu sinni viss um að ég myndi flokka þær allar sem einhverjar sérstakar gítarhetjur, en jæja, látum þær standa.

Einhverjar uppástungur?

26.01.2010 | The Maillard Reaction
beef cover

Eins og má kannski sjá á færslunum hérna að neðan, hef ég nokkuð verið að velta matreiðslu fyrir mér.

Meira að segja promptaði það Sveinbjörn til að bendla mig við þetta þýska karlrembu-kjötætu tímarit sem nefnist BEEF! (sem ég verð þó að segja að er nokkuð vel heppnaður titill).

Eftir að hafa lesið fleiri síður um "hina fullkomnu steik" eða "hinn fullkomna hamborgara" rakst ég óvart á þessa hugleiðingu um mikilvægi þess "að loka kjötinu" með steikingu. Greinin kollvarpar að nokkru hugmyndum mínum um hvernig á að steikja kjöt, eða aðallega afhverju maður á að gera það á tiltekinn hátt.

Einnig finnst mér rétt að benda sérstaklega á þessa matreiðslusíðu sem tengt er við í greininni (þó að flestir hlekkirnir í greininni séu líka nokkuð athyglisverðir). Ekki svo að skilja að ég hafi prófað tillöguna, en hún hljómar gómsæt og sennileg og ég hef hugsað mér að prófa þetta á næstunni.

Í greininni er bent á það að snöggsteiking á hvorri hlið (þ.e. "að loka kjötinu") geri í raun ekkert til að halda safanum inni í því. Mun heldur virðist þessi snögga steiking valda því að minna af vökvanum nær að gufa upp (út af snögga steikingartímanum) og svo verður víst eitthvað sem kallast Maillard reaction, sem á meira skylt með því að rista hluti, til þess að það bragðast betur.

Allt í allt mjög áhugavert. Mæli með því að renna yfir þetta ef maður hefur minnstan áhuga á steikum.

26.01.2010 | The Onion

Datt eitthvað inn á The Onion áðan eins og ég geri af og til. Kannski hálf ódýrt að pósta hérna linkum á Onion fréttir, en mér fannst þetta bara vera aðeins of skondnar pælingar.

Fréttaflutningur af viðbrögðum Súmera við sköpun heimsins.

Hugleiðingar læknastéttarinnar á miðöldum um uppruna Svarta Dauða.

25.01.2010 | Cheese & Burger Society

Talandi um hamborgara, þá sá ég link á þessa sjúklega smekklegu ostborgara síðu hjá Kára.

Borgararnir sem eru þarna, eru geðveikt lekkerir og djúsí og fallegir. Mig langar að borða þá alla.

Stórkostlegur minnisvarði um gjöfina til mannkynsins, sem ostborgarinn er.

21.01.2010 | Lick my salty butter balls
ip0112 butter balls2 lg

Internetið er stútfullt af myndum af ógeðslegum mat.

Vefsíðusafnið This is why you're fat heldur ágætlega utan um þennan mat, og þá einkum miður girnilegt feitmeti.

Sjálfur er ég mikið fyrir kjöt og kjötrétti gefinn, og einkum og sér í lagi feitmeti á borð við beikon, ostborgara og ostaskinkubeikonrjóma. Þrátt fyrir það gengur þetta flest mjög fram af mér. Til dæmis finnst mér sykur-rjóma-kleinuhringja kakan óraunveruleg og Þrefaldi-D borgarinn virkar meira á mig eins og kúkaklessa með graftarvessum en safaríkur borgari.

Maður gerir ráð fyrir að mikið af þessum réttum hafi komið til í aðdraganda pulsupartía eða fyrir ruðningsgláp á sunnudegi.

Athyglisverðasti rétturinn þótti mér samt eiginlega vera sá einfaldasti. Djúpsteiktar smjörkúlur, eins og þær sem eru á myndinni, eru ekki að þykjast vera neitt annað en þær eru. Smjörkúlurnar eru skemmtileg viðbót við matreiðsluflóruna í Texas-ríki og eru ef til vill klámfengnasta virðing sem harðri fitu hefur nokkurntíman verið vottað.

Seriously. Langar mann einhvern tíman til að borða smjörkúlur?

Nei... Ókei...

...En ef ég djúpsteiki þær fyrst?

20.01.2010 | Rocket Surgery

Courtesy of Einar.

rocketsurgery
20.01.2010 | Consollection
consollection

Frekar töff síða sem ég rakst á.

Eftir því sem ég best fæ séð, þá er einhver gaur búinn að safna, eða allavega taka myndir af 145 leikjatölvum. Á síðunni er þeim svo fallega raðað upp og maður getur smellt á viðkomandi leikjatölvu og fengið nánari upplýsingar um hana, svo sem útkomuár, framleiðandi o.s.frv. Það sem er samt mest awesome er að það fylgja myndir af upprunalegu pakkningunum sem vélarnar voru seldar í.

Fyrir þá sem vilja syrgja gömlu vélarnar sínar.

19.01.2010 | Guitar Hero

Frekar awesome plakat með legendary gítarhetjum. Því miður neglect-aði ég að merkja við síðuna, hvar ég fann þetta og ætla því að stelast til að birta þetta svona hrátt.

Skelli kannski inn link við tækifæri ef ég rekst á þetta aftur.

Viðbót:
Fann aftur síðuna. Þetta er eftir gaur sem heitir Maxim Dalton.

guitarlegends
19.01.2010 | Afsakið fröken? Eruð þér portkona?

Athyglisverð grein á Guardian um rannsókn sem var framkvæmd á Bretlandi á neytendum vændisþjóustu.

Í greininni er vísað í viðtöl við karlmenn sem höfðu keypt sér þjónustu vændiskvenna og fjallað um viðhorf þeirra til kvennanna, iðnaðarins og löggjafarinnar sem umlykur iðnaðinn.

Nokkur sjónarmið koma þarna fram, sem mér þóttu frekar merkileg og hef nú ekki heyrt sérstaklega mikið af áður, þegar þessi mál hafa verið rædd. Þá á ég t.a.m. við það að mönnunum virtist nokkuð sama hvort vændiskonurnar voru fórnarlömb mansals eða ekki, en frekar hefur farið hærra fyrir því að menn haldi því fram að mansal sé hverfandi innan iðnaðarins og að allir séu þar af fúsum og frjálsum vilja.

Einnig þótti mér athyglisvert að stór hluti viðmælendanna virtist finna fyrir einhverskonar skömm og vanlíðan yfir þessu öllu saman, en voru samt virkir þátttakendur í ferlinu.

Þá þótti mér eiginlega hálf ógnvænlegt að lesa um það að mennirnir sjálfir virtust sannfærðir að ef iðnaðarins nyti ekki við, þá yrðu menn að þvinga konur til samræðis við sig, því þyrfti hann að vera til staðar. Engu að síður virtust sumir eiginlega vera að leitast eftir nákvæmlega þeirri upplifan með viðskiptum sínum á þessum markaði. Sem er töluvert ógeðfellt.

18.01.2010 | Lux Mundi
jesuslightswitch
Ég veit ekki alveg með þetta.
18.01.2010 | Minjasafn eftirsjárinnar

Náði ekkert að pósta í dag. Er búinn að vera að skoða síðuna Ugliest Tattoos spjaldanna á milli.

Þetta safn persónulegrar eftirsjár og kárnaðrar stundargleði hefur haldið mér hugfangnum í allan dag.

Þau eru mörg ansi ljót og hræðileg, húðflúrin sem birtast manni á þessari síðu, en eitt hefur vakið hjá mér svo mikla forundran og vangaveltur að ég hætti að skilja mannskepnuna í eitt augnablik. Myndin er slík að ég kann ekki við að birta hana hérna á síðunni. Mér finndist hún draga þessa annars smekklegu síðu niður.

Hvernig fæst þessi niðurstaða? Hvaða hugsanaferli leiðir þetta sköpunarverk af sér? Þessi mynd spyr svo margra spurninga, en svarar því miður fæstum þeirra.

15.01.2010 | Friday!
fridaymovie
14.01.2010 | You're the birthday... boy... or girl!
simpsons20yrs

Simpsons fjölskyldan á opinberlega 20 ára afmæli í dag. Reyndar er hún nær því að vera 23 ára, en hún leit fyrst dagsins ljós í apríl 1987. Aukinheldur var fyrsti þátturinn í fullri lengd sýndur í desember 1989, en látum það liggja milli hluta. Ef Matt Groening segir að þau séu tvítug í dag, þá eru þau tvítug í dag.

Sökum þessa hafa til að mynda BBC heiðrað fjölskylduna með því að birta lista yfir eftirminnilega þætti, og Guardian tiltekið 20 bestu atriði að þeirra mati.

Merkilega nokk er hvergi minnst á mitt eftirlætisatriði í öllum þáttunum, sem ég get horft á aftur og aftur, en það er Worker and Parasite sketsinn úr þættinum um Gabbo.

Hefur fólk einhverja skoðun á þessu?

14.01.2010 | The Usual Suspects
theusualsuspects

Geðveikt! Lögreglan í Vestur-Jórvíkurskíri greiðir fólki £15 fyrir að leika glæpamenn í sakbendingu.

Því miður er ekki um gamaldags line-up að ræða, heldur bara vídjó-atriði.

Samt!

Nú skora ég á Sveinbjörn Þórðarson að skella sér þarna suður eftir og leika gangster.

14.01.2010 | Dino-Shark

Þessi frétt er ástæðan fyrir því að ég ætla aldrei að leggjast til sjósunds við gylltar strendur Suður-Afríku.

"Holy shit. We just saw a gigantic shark eat what looked like a person in front of our house. That shark was huge. Like dinosaur huge."

14.01.2010 | Llíbarkújs
llibarkujs

Það eina sem mér datt í hug þegar ég las þessa frétt á rúv-vefnum, var Klaufabárðarnir.

Maður getur líka einhvernvegin gert sér í hugarlund hvernig týpa það er sem þarf að klifra upp á brettið á vegheflinum til að stjórna björgunaraðgerðinni á eigin bíl.

Athyglisvert líka að hið ágæta fólk á fréttastofu rúv kýs að nota þessa sömu low-res mynd af sjúkrabíl fyrir allar innlendar fréttir sem tengjast slysum á einn eða annan hátt. Sjá t.d. hér.

13.01.2010 | Illaður Halur

Er að fíla þetta nýja look. Spái því að það verði heitt í sumar. Kominn tími til að kjepps fari að láta skína í peccana.

douchebagskjallinn
13.01.2010 | Fyrsta húsnæði

Að reyna að eignast húsnæði á Íslandi er eins og að bíða í ótrúlega langri röð fyrir utan skemmtistað sem rukkar inn. Maður horfir á VIP röðina hlaupa inn og út, og loksins þegar maður sjálfur kemst inn og er búinn að borga aðgangseyri, þá hefur maður ekki efni á bjór, það er verið að loka, og allt fallega fólkið er löngu farið heim.

Stundum er svo fólki hent út.

Ekki það að maður getur alltaf bara farið á Áslák í Mosfellsbæ eða Njálsbúð ef maður vill ekki bíða í röð.

12.01.2010 | Burj Khalifa

Þann 4. janúar var hæsta bygging heims opnuð. Burj Khalifa, eða Kalífa-turninn (gjarnan kallaður Dubai-turninn) er 828m hár og var 5 ár í byggingu.

Turninn er stór ástæða þess að Dubai er nú sligað af skuldum en bygging hans kostaði 1,5 milljað USD (186 milljarða ISK). Þess má reyndar geta í framhaldi að turninn var aðeins hluti af stærra verkefni í miðborg Dubai sem kostar um 20 milljarða USD (2.480 milljarða ISK).

Neðstu 39 hæðirnar af turninum eru innréttaðar af Giorgio Armani og eru með dýrustu fasteignum í heimi. Íburðurinn er alltumlykjandi.

Ég mæli með að fólk smelli á myndina til að skoða stærri útgáfu. Þetta er allsvakalegt mannvirki.

burj khalifa small
Þess má geta til samanburðar að litli turninn til vinstri virðist
vera svona meðal 40 hæða blokk.
Reynið að finna litlu mennina við botn turnsins.
11.01.2010 | Letterheady

Fann þessa snilldar síðu með athyglisverðu og sögulegu bréfsefni.

Á Letterheady má finna bréfsefni frá einstaklingum á borð við Albert Einstein, Adolf Hitler, Johnny Cash ofl. ásamt ákveðnum frægum fyrirtækjum.

jcashletterhead1

Held að það sé málið að koma sér upp einhverju flottu bréfsefni.

11.01.2010 | Real vs. fictional science

Xkcd, kemur hlutunum alltaf svo vel frá sér.

science montage
11.01.2010 | Hvalræði Kristjáns Loftssonar

Í áhugaverðri frétt um útflutning á hvalkjöti frá Íslandi má hæglega draga þær ályktanir að kenningar Kristjáns Loftssonar um gjaldeyrisöflunarmöguleika iðngreinarinnar eru ef til vill full bjartsýnar.

Þar kemur fram að einungis þrjú kíló af hvalkjöti hafi verið flutt út frá Íslandi á tímabilinu janúar-nóvember 2009.

Ég reyndi að finna gögn um þetta á vef Hagstofunnar, en sjáfsagt er þessi flokkur of lítill til þess að um hann sé sérstaklega fjallað í talnagögnum, sem þar eru til reiðu. Þá er einnig rétt að halda því til haga að framsetningu gagna á vefsíðu Hagstofunnar er um margt ábótavant.

Samkvæmt fréttinni mun verðmæti hinna útfluttu afurða nema 5.442 krónum, eða 1.814 krónum á kílóið.

Maður verður því að spyrja sig hvaða annarlegu hvatir liggi að baki herferð Kristjáns gegn hvölum umhverfis landið.

Ekki það að mér þykir hrefnukjöt alveg ómótstæðilega gott og fagna því svosem persónulega að það er fáanlegt á innlendum markaði.

08.01.2010 | Baramac Obama
barackismac
Ég fíla pacman kallinn sem er að éta eplið.
06.01.2010 | Hey Flowchart!
hey jude beatles flow chart
06.01.2010 | Pixel Wars

Svo að við höldum nú aðeins áfram með þetta Star Wars þema, þá finnst mér rétt að benda á frekar geðveika síðu sem ég rakst á.

Joshua Budich á safn af Star Wars leikföngum. En það er ekki nóg fyrir Joshua Budich. Joshua er búinn að gera lítið pixel-icon fyrir hvert einasta Star Wars dót sem hann á.

Alltof klikkað, alltof tímafrekt, en að sama skapi frekar mikið töff.

Frekar þung síða, en gefið þessu séns. Þetta er töff.

05.01.2010 | R2 Reynolds
r2d2smoker

Frekar magnað youtube clip sem ég rakst á. Kemur í ljós að R2D2 er að laumupúkast með að reykja. Og C3PO virðist þarna vera einhverskonar útgáfa af Þorgrími Þráins að banna öllum að reykja.

Maður skilur nú samt eiginlega R2D2 að leyfa sér að laumast í eina og eina. Frekar taugatrekkjandi ábyggilega fyrir litla kallinn að vera alltaf að redda málunum svona fyrir horn.

Þetta vekur samt upp allskyns vangaveltur um mannlegt eðli R2D2. Eru einhverjir bíólógískir vefir í honum sem hann getur eyðilagt með reykingum? Við vitum að Kenny Baker leikur R2D2 og dvelst innra með honum, en á líka að vera dvergur inni í R2D2 skv. sögunni?

...og er þá sá dvergur að reykja í þessarri auglýsingu?

Spurningarnar eru endalausar.

04.01.2010 | Simple Wikipedia

Simple Wikipedia er snilld...

...held ég allavega.

Simple Wikipedia væntanlega wikipedia fyrir "simple-fólk".

Mér fannst eins og ég yrði pínku tregur þegar ég las þessar greinar. Sérstaklega þessa um Deconstruction.

Merkilega óþægilegt að lesa svona einfeldningslegan texta.

04.01.2010 | Ríkisstjórnarmyndanir

Þetta er dálítið athyglisvert. Á vef Stjórnarráðsins má finna ljósmyndir af Ríkisstjórnum Íslands í gegnum tíðina.

Mestmegnis eru þetta nú þungbúnir svarthvítir karlar í dökkum jakkafötum.

Það er reyndar leitt að ekki eru myndir af þeim átta ríkisstjórnum sem sátu milli 1920-41, en kannski voru þær aldrei festar á filmu. (Hér má sjá ríkisstjórnartal.)

Merkilega ljótt þetta borð sem þau sitja við þarna á Bessastöðum. Mætti alveg skipta þessu út við tækifæri.

04.01.2010 | Good times

Nýlegir endurfundir með gömlum kunningjum leiddu til ákveðinnar endurskoðunar á ritstjórnarstefnu þessarar síðu. Raunar var það eitthvað sem hafði vissulega blundað í mér um nokkurt skeið en ég hafði ekki tekið neinum föstum tökum fram að þessu.

Eftir að hafa lesið mig aftur í gegnum árið 2009, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að efnistökin eru með eindæmum leiðinleg oft á köflum, og minnir síðan gjarnan á ofstopafullt "eyju-blogg".

Slíkt er aldrei gott.

Það er í sjálfu sér gott og vel, og hverjum manni heilbrigt, að hafa miklar og sterkar skoðanir á hlutunum. Það felur þó ekki í sér að mönnum beri einhver sérstök skylda til að hrópa upp um þessar sömu hugmyndir, og leiðingjarnt að sjá þegar menn fara að reka áróður eða leiðast jafnvel út í hálfgerða eineltistilburði gagnvart einstökum persónum og gerendum.

Því miður sýnist mér ég hafa gerst sekur um flest allt þetta.

Það er miður að stór hluti, ef ekki stærstur hluti, af íslensku content-i sem ratar á netið þessa dagana er þvaður og rifrildi um pólitísk málefni sem menn eru misvel inni í. Þessa dagana er vissulega fullkomið offramboð af skoðunum á pólitískum málefnum, pópúlisma, hverskyns áróðri og múgæsingi.

Sennilega er það allt saman best geymt á eyjunni og blog.is, þar sem Rómverji, Valsól, Balzac og Einn Upplýstur geta skrifað athugsemdir þangað til internetið hættir að rífast.

Skemmtilegt fólk á að halda úti skemmtilegum síðum.


Almennt er ég nú ekki mikið gefinn fyrir áramótaheiti, en ef ætti að strengja eitthvert slíkt, þá yrði það að: a) hætta að lesa skítkasts-blogg og b) hætta að kasta skít sjálfur.

04.01.2010 | 2010

Gleðilegt ár 2010!

© 2010 Arnaldur Grétarsson