Nýlegir endurfundir með gömlum kunningjum leiddu til ákveðinnar endurskoðunar á ritstjórnarstefnu þessarar síðu. Raunar var það eitthvað sem hafði vissulega blundað í mér um nokkurt skeið en ég hafði ekki tekið neinum föstum tökum fram að þessu.
Eftir að hafa lesið mig aftur í gegnum árið 2009, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að efnistökin eru með eindæmum leiðinleg oft á köflum, og minnir síðan gjarnan á ofstopafullt "eyju-blogg".
Slíkt er aldrei gott.
Það er í sjálfu sér gott og vel, og hverjum manni heilbrigt, að hafa miklar og sterkar skoðanir á hlutunum. Það felur þó ekki í sér að mönnum beri einhver sérstök skylda til að hrópa upp um þessar sömu hugmyndir, og leiðingjarnt að sjá þegar menn fara að reka áróður eða leiðast jafnvel út í hálfgerða eineltistilburði gagnvart einstökum persónum og gerendum.
Því miður sýnist mér ég hafa gerst sekur um flest allt þetta.
Það er miður að stór hluti, ef ekki stærstur hluti, af íslensku content-i sem ratar á netið þessa dagana er þvaður og rifrildi um pólitísk málefni sem menn eru misvel inni í. Þessa dagana er vissulega fullkomið offramboð af skoðunum á pólitískum málefnum, pópúlisma, hverskyns áróðri og múgæsingi.
Sennilega er það allt saman best geymt á eyjunni og blog.is, þar sem Rómverji, Valsól, Balzac og Einn Upplýstur geta skrifað athugsemdir þangað til internetið hættir að rífast.
Skemmtilegt fólk á að halda úti skemmtilegum síðum.
Almennt er ég nú ekki mikið gefinn fyrir áramótaheiti, en ef ætti að strengja eitthvert slíkt, þá yrði það að: a) hætta að lesa skítkasts-blogg og b) hætta að kasta skít sjálfur.
Ég er með skýra ritstjórnarstefnu á minni vefsíðu, en í henni felst að ég tala aldrei um stjórnmál.
Kannski er það ástæðan fyrir að ég blogga eiginlega aldrei? :D
Já, veistu það Halldór, ég held að það sé ekki svo vitlaust að vera með einhverskonar svoleiðis meginreglu.
Sömuleiðis held ég að það sé eitthvað til í hinu sem þú segir, að því leytinu til að það er ekkert í boði að ræða neitt annað en icesave eða pólitíska flokkadrætti á þessu landi. Auðvitað smitar þetta út frá sér.
Ein nýleg birtingamynd þess er nú hvernig menn hafa verið að gera honum bróður þínum upp allskyns skoðanir og lífsreglur í kjölfar áramótaskaupsins.
Glatað shit!
Tjah maður getur breytt blogginu sínu í hálfgert menningar-blogg, talað um tónlist og kvikmyndir og svoleiðis. Allavega alltaf gaman að lesa þannig og uppgötva nýja hluti :)
The password to post a comment is:
(Halldór Eldjárn)