11.1.2010 | Hvalræði Kristjáns Loftssonar

Í áhugaverðri frétt um útflutning á hvalkjöti frá Íslandi má hæglega draga þær ályktanir að kenningar Kristjáns Loftssonar um gjaldeyrisöflunarmöguleika iðngreinarinnar eru ef til vill full bjartsýnar.

Þar kemur fram að einungis þrjú kíló af hvalkjöti hafi verið flutt út frá Íslandi á tímabilinu janúar-nóvember 2009.

Ég reyndi að finna gögn um þetta á vef Hagstofunnar, en sjáfsagt er þessi flokkur of lítill til þess að um hann sé sérstaklega fjallað í talnagögnum, sem þar eru til reiðu. Þá er einnig rétt að halda því til haga að framsetningu gagna á vefsíðu Hagstofunnar er um margt ábótavant.

Samkvæmt fréttinni mun verðmæti hinna útfluttu afurða nema 5.442 krónum, eða 1.814 krónum á kílóið.

Maður verður því að spyrja sig hvaða annarlegu hvatir liggi að baki herferð Kristjáns gegn hvölum umhverfis landið.

Ekki það að mér þykir hrefnukjöt alveg ómótstæðilega gott og fagna því svosem persónulega að það er fáanlegt á innlendum markaði.


6 comments
(Arnaldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 11.1.2010

Sveinbjörn

Ég flutti út 1kg af hvalkjöti til Bretlands í fyrra. Jei!

[ Reply ]

Arnaldur at 12.1.2010

Arnaldur

Vá, þú berð þá sennilega single-handedly ábyrgð á um 25% af útflutningi Íslendinga á hvalkjöti. Sannkallaður Eirab.

[ Reply ]

Sindri at 11.1.2010

Sindri

Hrefnukjöt er gott. Ég verð að taka undir gagnrýni þína á gagnaframsetningu Hagstofunnar. Hún hefur valdið mér ýmsum óþægindum.

[ Reply ]

Arnaldur at 12.1.2010

Arnaldur

Já. Þetta er neflinlega dálítið leiðinlegt. Þeir eru með svo fín og ítarleg gögn þarna, um allt mögulegt, en það er oft mesta basl að nálgast þetta.

Tala nú ekki um þegar síðan þeirra getur stundum bara ekki afgreitt ákveðna statistík sem maður biður um og maður þarf að leggja inn fyrirspurn og bíða eftir excel-skjali í tvo daga.

[ Reply ]

Arnaldur Olafsson at 14.1.2010

Unknown User

Ég tók með mér 6kg af hrefnukjeti til Frakklands nú í byrjun janúar og hef því single-handedly náð að rífa útflutninginn upp um 200%
C'est pas mal ca!

[ Reply ]

Arnaldur at 15.1.2010

Arnaldur

Kristján hefur kannski hugsað sér að dreifingin færi fram í gegnum einstaklinga sem ættu leið úr landinu.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment