Fann þessa snilldar síðu með athyglisverðu og sögulegu bréfsefni.
Á Letterheady má finna bréfsefni frá einstaklingum á borð við Albert Einstein, Adolf Hitler, Johnny Cash ofl. ásamt ákveðnum frægum fyrirtækjum.

Held að það sé málið að koma sér upp einhverju flottu bréfsefni.
Mér finnst Nat King Cole, Einstein og Hitler vera með flottustu bréfsefnin. Hin eiga það til að vera dálítið oflhlaðin.
Annars er það athyglisvert hvað Einstein og Hitler eru með lík bréfsefni.
Svo er ég pínku sucker fyrir NightStalker bréfsefninu. Það er svo absúrt að einhver fjöldamorðingi láti hanna og prenta sér bréfsefni.
(Steinn)