Simpsons fjölskyldan á opinberlega 20 ára afmæli í dag. Reyndar er hún nær því að vera 23 ára, en hún leit fyrst dagsins ljós í apríl 1987. Aukinheldur var fyrsti þátturinn í fullri lengd sýndur í desember 1989, en látum það liggja milli hluta. Ef Matt Groening segir að þau séu tvítug í dag, þá eru þau tvítug í dag.
Sökum þessa hafa til að mynda BBC heiðrað fjölskylduna með því að birta lista yfir eftirminnilega þætti, og Guardian tiltekið 20 bestu atriði að þeirra mati.
Merkilega nokk er hvergi minnst á mitt eftirlætisatriði í öllum þáttunum, sem ég get horft á aftur og aftur, en það er Worker and Parasite sketsinn úr þættinum um Gabbo.
Hefur fólk einhverja skoðun á þessu?
Ég er sammála, Worker and Parasite er snilld. Eitt af mínum uppáhalds mómentum er í Frank Grimes þættinum, "to professionalism!"
Annað sem mér hefur alltaf þótt ótrúlega fyndið er í þættinum "and maggie makes three." Homer er að byrja sögu og segir
"It was a tumultuous time for our nation: the clear beverage craze gave us all a reason to live. The information superhighway showed the average person what some nerd thinks about Star Trek. And the domestication of the dog continued unabated."
Þessi síðasta setning nær mér alltaf!
The password to post a comment is:
(Arnaldur)