Náði ekkert að pósta í dag. Er búinn að vera að skoða síðuna Ugliest Tattoos spjaldanna á milli.
Þetta safn persónulegrar eftirsjár og kárnaðrar stundargleði hefur haldið mér hugfangnum í allan dag.
Þau eru mörg ansi ljót og hræðileg, húðflúrin sem birtast manni á þessari síðu, en eitt hefur vakið hjá mér svo mikla forundran og vangaveltur að ég hætti að skilja mannskepnuna í eitt augnablik. Myndin er slík að ég kann ekki við að birta hana hérna á síðunni. Mér finndist hún draga þessa annars smekklegu síðu niður.
Hvernig fæst þessi niðurstaða? Hvaða hugsanaferli leiðir þetta sköpunarverk af sér? Þessi mynd spyr svo margra spurninga, en svarar því miður fæstum þeirra.
Þetta er fáránlega creepy:
http://ugliesttattoos.com/2010/01/16/funny-tattoos-congratulations-maam-its-a-skeleton/
Ég er búinn að vera með störu á þessa mynd í svona korter. Þetta er heimsins mesti óþverri.
Þetta er geðveikt. Þá meina ég geðveikt í upprunalegri merkingu þess orðs.
Það væri eflaust hægt að rýna eitthvað í persónuleika þessa manns ef upplausnin væri betri og við gætum séð hvaða dvd-myndir og geisladiska hann hefur að geyma í litlu hillunni sinni.
The password to post a comment is:
(Sindri)