Internetið er stútfullt af myndum af ógeðslegum mat.
Vefsíðusafnið This is why you're fat heldur ágætlega utan um þennan mat, og þá einkum miður girnilegt feitmeti.
Sjálfur er ég mikið fyrir kjöt og kjötrétti gefinn, og einkum og sér í lagi feitmeti á borð við beikon, ostborgara og ostaskinkubeikonrjóma. Þrátt fyrir það gengur þetta flest mjög fram af mér. Til dæmis finnst mér sykur-rjóma-kleinuhringja kakan óraunveruleg og Þrefaldi-D borgarinn virkar meira á mig eins og kúkaklessa með graftarvessum en safaríkur borgari.
Maður gerir ráð fyrir að mikið af þessum réttum hafi komið til í aðdraganda pulsupartía eða fyrir ruðningsgláp á sunnudegi.
Athyglisverðasti rétturinn þótti mér samt eiginlega vera sá einfaldasti. Djúpsteiktar smjörkúlur, eins og þær sem eru á myndinni, eru ekki að þykjast vera neitt annað en þær eru. Smjörkúlurnar eru skemmtileg viðbót við matreiðsluflóruna í Texas-ríki og eru ef til vill klámfengnasta virðing sem harðri fitu hefur nokkurntíman verið vottað.
Seriously. Langar mann einhvern tíman til að borða smjörkúlur?
Nei... Ókei...
...En ef ég djúpsteiki þær fyrst?
Mér varð eiginlega flökurt þegar ég las uppskriftina að þessum smjörkúlum.
Frábært að það sé "Peanut oil, for frying" -- gott og heilbrigt að nota peanut oil en ekki smjör til þess að steikja...
Mér varð seriously óglatt á að skoða þessa síðu! En það er rétt, svo lengi sem þetta er steikt upp úr peanut oil þá er þetta í lagi.
Frábær athugasemd við þessa uppskrift:
"I make this every evening and my family simply adores it! Also, try frying it in lard instead of vegetable oil..it tastes a lot better."
Ég minni á frumregluna í amerískri matargerð:
Ef A er gott og B er gott, þá er A blandað við (dýft í) B eins gott eða betra.
Þess vegna eru saltkringlur súkkulaðihúðaðar í bandaríkjunum.
(btw var það ekki Hómer sem kveikti sér í smjörlengju og fékk sér smók?)
Ath: A má auðvitað vera það sama og B. Ef ein sneið af áleggi er góð, þá eru tvær tvöfalt betri etc...
Mundir þú segja að þessi vensl séu línuleg? Til dæmis ef manni finnst kleinuhringir góðir og maður á objectífan hátt mælir kleinuhring sem 200 sælustig og manni finnst beikon gott og mælir það á 300 sælustig, er þá beikon ofan á kleinuhring 500 sælustig? Eða er sambandið eitthvað flóknara?
Án þess að fletta upp í þeim mun þykkari bókum myndi ég giska á að það geri "meira eða samasem" 500.
Svo bætist við að eftir að tengingin er gerð er ekki hægt að snúa aftur. Eftir að beikonkleinuhringir eru kynntir eru kleinuhringir per se komnir niður fyrir 200 (hálftómlegt án beikonsins).
Í ljósi þessarar umræðu vil ég vekja athygli á The Incompatible Food Triad.
http://en.wikipedia.org/wiki/George_W._Hart#Incompatible_Food_Triad
Hef eytt miklum tíma í að hugleiða þetta...
(Sveinbjörn)