Header
26.01.2010 | The Maillard Reaction
beef cover

Eins og má kannski sjá á færslunum hérna að neðan, hef ég nokkuð verið að velta matreiðslu fyrir mér.

Meira að segja promptaði það Sveinbjörn til að bendla mig við þetta þýska karlrembu-kjötætu tímarit sem nefnist BEEF! (sem ég verð þó að segja að er nokkuð vel heppnaður titill).

Eftir að hafa lesið fleiri síður um "hina fullkomnu steik" eða "hinn fullkomna hamborgara" rakst ég óvart á þessa hugleiðingu um mikilvægi þess "að loka kjötinu" með steikingu. Greinin kollvarpar að nokkru hugmyndum mínum um hvernig á að steikja kjöt, eða aðallega afhverju maður á að gera það á tiltekinn hátt.

Einnig finnst mér rétt að benda sérstaklega á þessa matreiðslusíðu sem tengt er við í greininni (þó að flestir hlekkirnir í greininni séu líka nokkuð athyglisverðir). Ekki svo að skilja að ég hafi prófað tillöguna, en hún hljómar gómsæt og sennileg og ég hef hugsað mér að prófa þetta á næstunni.

Í greininni er bent á það að snöggsteiking á hvorri hlið (þ.e. "að loka kjötinu") geri í raun ekkert til að halda safanum inni í því. Mun heldur virðist þessi snögga steiking valda því að minna af vökvanum nær að gufa upp (út af snögga steikingartímanum) og svo verður víst eitthvað sem kallast Maillard reaction, sem á meira skylt með því að rista hluti, til þess að það bragðast betur.

Allt í allt mjög áhugavert. Mæli með því að renna yfir þetta ef maður hefur minnstan áhuga á steikum.


5 comments have been posted
[ Add Comment ]
Sveinbjörn at 17:36 26.01.2010
Sveinbjörn
Tjah, brátt muntu ekki hafa ráð á að drekka ískaldan bjór eða gæðarauðvín með steikinni þinni:

http://eyjan.is/blog/2010/01/26/starfshopur-vill-haekka-frekar-verd-a-afengi-og-leyfa-afengisauglysingar-med-takmorkunum/?utm_source=feedburner&utm_medium=feed&utm_campaign=Feed%3A+Eyjan+%28Eyjan%29

[ Reply ]

Arnaldur at 21:15 26.01.2010
Arnaldur
Vá! They just lost my vote! Er ekki í lagi með þetta fólk?

[ Reply ]

Grétar at 20:08 27.01.2010
Grétar
Úff... ég hlakka til að koma aftur til siðmenningarinnar.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 18:08 26.01.2010
Sveinbjörn
Annars finnst mér að þú ættir að gerast ákrifandi að þessu blaði auk BEEF!:

http://www.thechap.net/

"Since 1999, the Chap has been championing the rights of that increasingly marginalised and discredited species of Englishman - the gentleman. The Chap believes that a society without courteous behaviour and proper headwear is a society on the brink of moral and sartorial collapse"

[ Reply ]

Arnaldur at 21:12 26.01.2010
Arnaldur
Heheh... Ég rakst á The Chap um daginn. Það er rétt. The Beef Chap!

[ Reply ]


Add Comment

The password to post a comment is lortur.

Tags <i>, <u> and <b> are permitted for styling.

Name:

Website:

(optional)

Password:

Comment:

© 2010 Arnaldur Grétarsson