26.1.2010 | Gítarkvenhetjur

pj harvey1

Í tengslum við fyrri færslu mína um Gítarhetju-plakat, benti Þórdís réttilega á að ekki var neinum konum fyrir að fara á plakatinu. Eitthvað sem ég hafði ekki veitt neinni sérstakri eftirtekt sjálfur, en vakti mig til umhugsunar þegar hún minntist á það.

Í kjölfarið reyndi ég að telja upp einhverjar kvenkyns gítarhetjur, (með áherslu á hetjur,) sem væru eftirminnilegar, en greip hvarvetna í tómt.

Eftir þó nokkra umhugsun, detta mér eiginlega bara þrjár konur, sem hafa eitthvað með gítara að gera, í hug.

Joni Mitchell, PJ Harvey, og Aimee Mann.

Reyndar er ég ekki einu sinni viss um að ég myndi flokka þær allar sem einhverjar sérstakar gítarhetjur, en jæja, látum þær standa.

Einhverjar uppástungur?


12 comments
(Arnaldur)




12 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 26.1.2010 17:33

Sveinbjörn

Mér finnst PJ Harvey vera gítarkvenhetja.

[ Reply ]

Arnaldur at 26.1.2010 21:11

Arnaldur

Já. PJ Harvey er gítarhetja.

[ Reply ]

Eiki at 26.1.2010 21:47

Eiki

Mér dettur í hug að kvenkyns gítarhetja gæti kallast "slag-gýgur", sambland af slaggígju (gítar) og gýgi (tröllkonu).

[ Reply ]

Arnaldur at 26.1.2010 21:53

Arnaldur

Hmmm... Einhvernvegin minnir þetta mig frekar á einhverskonar sjúkdómseinkenni en hitt.

Ágætis tillaga samt. Um að gera, að búa til konsept utan um það að konur geti verið gítarhetjur.

[ Reply ]

Eiki at 27.1.2010 00:15

Eiki

Já reyndar hljómar þetta eins og slagæðagúlpur.

Svo er gýgur frekar neikvætt orð miðað við hetju...

[ Reply ]

gummi at 27.1.2010 12:34

gummi

Kim Gordon

[ Reply ]

Grétar at 27.1.2010 20:05

Grétar

Hún er bassahetja, ekki satt?

[ Reply ]

Gummi at 29.1.2010 13:48

Unknown User

Held að hún sé bæði.

[ Reply ]

Arnaldur at 29.1.2010 19:57

Arnaldur

Já. Hún er (b)æði.

[ Reply ]

Þórdís at 27.1.2010 13:48

Þórdís

Hey gaman að þessu Arnaldur!

Ég tók sjálf ekki eftir því strax að það væru bara kallar á plakatinu.

En kannski er punkturinn einmitt að "gítarhetja" er skema sem er tengt við karla (þótt það séu kannski konur sem eru alveg jafn klárar á gítar, alveg jafn töff o.s.frv.).

[ Reply ]

Þórdís at 27.1.2010 13:59

Þórdís

Já og, uh,

Ani DiFranco
Joan Jett
Dolly Parton!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 29.1.2010 02:41

Sveinbjörn

I love rock and roll.