29.1.2010 | Meat bubbles

Mér varð illt í augunum og fór að svima eftir að ég var búinn að spila kjötspilið á heimasíðu tímaritsins BEEF! í um 4 klst.

Það er langt síðan ég varð svona háður einhverjum tölvuleik.

Leikurinn er afbrigði af hinum klassíska tölvuleik Bubbles þar sem búið er að skipta út blöðrunum fyrir alls kyns kjötafurðir.

Ég er orðinn þeirrar skoðunar að leikurinn svindli. Það næsta sem ég hef komist því að klára hann var þegar ég átti sjö kjötstykki eftir. Þá skyndilega byrjuðu línurnar að hrannast niður aftur.

Annars er ég nú sæmilega góður í Bubbles almennt, og klára hann mjög gjarnan með lítilli fyrirhöfn.

Maður er með svo ofboðslega fína spatial orientation, sjáiði til.


4 comments
(Arnaldur)




4 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Guðmundur Kristján Jónsson at 29.1.2010 23:55

Unknown User

Ég var að slútta þessu, er búinn að spila stanslaust í 3 fjandans tíma. Var með skor upp á 294280.
Þessi leikur grillar samt meira í manni heldur en bubbles, þetta er mun meira krefjandi stöff og stundum tekur hann óútreiknanlegar ákvarðanir.

[ Reply ]

Arnaldur at 30.1.2010 01:05

Arnaldur

Þessi leikur skemmdi mig!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 30.1.2010 20:44

Sveinbjörn

Just have some BEEF!

[ Reply ]

Arnaldur at 31.1.2010 01:38

Arnaldur

Ahahahahahahha!!!!!!!!! Ég náði að klára helvítis fokkings leikinn!!!