Nokkrum sinnum hef ég lent í þeirri undarlegu aðstöðu að reyna að útskýra að Dómkirkjan í Reykjavík sé raunverulega dómkirkja (e. cathedral).
Fólki þykir þetta eitthvað grunsamlegt þar sem orðið virðist hafa fengið nokkuð yfirfærða merkingu og frekar gilda um stórar hlaðnar kirkjur með miklu flúri og skrauti eða fínum gluggum og þess háttar.
Fólk virðist almennt vera frekar lítt uppnumið yfir Dómkirkjunni við Austurvöll og þykir það ósennilegt að hér sé raunveruleg dómkirkja á ferðinni. Ekki er laust við að maður finni sjálfur til hálfgerðar minnimáttarkenndar þegar maður reynir að útskýra þetta fyrir fólki.
Orðið cathedral kemur af latneska orðinu cathedra sem merkir sæti. Sæti biskups í þessu tilviki.
Cathedral þýðir því með réttu biskupskirkja eða embættiskirkja biskups.
Ef maður gerir myndaleit að Dómkirkjunni í Reykjavík verður ljóst að margir eru illa haldnir af ofangreindum misskilning, en við slíka leit hrannast upp myndir af Hallgrímskirkju, sem er einmitt ekki dómkirkja.
Reyndar mætti kannski með einhverju móti halda því fram að Hallgrímskirkja væri að sumu leyti dómkirkja, en núverandi biskup, sem virðist hafa verið haldinn einhverskonar svipaðri minnimáttarkennd í tengslum við dómkirkjuna sína, ákvað að láta vígja sig til biskups í Hallgrímskirkju. Tilfærsluna rökstuddi hann með því að fatahengið þar væri stærra og þægilegra fyrir alla erlendu viðhafnargestina sem von væri á.