Úfff! Missti næstum því lénið mitt. Fyrirtækið sem ég versla við er búið að breyta um nafn og ég hélt að það væri eitthvað óprúttið e-mail scam í gangi.
Fattaði svo að það voru sannarlega liðin tvö ár frá því að ég endurnýjaði arnaldur.org síðast.
Alltaf mjög ótraustvekjandi þegar fyrirtæki sem maður kannast ekki við, segja að maður þurfi að fara á heimasíðuna þeirra og gefa upp kortanúmer.
Allavega, þá er lénið tryggt í tvö ár til viðbótar.
Léninu mínu ótengt, þá fann ég þessa skemmtilegu hugvekju um Akureyri, hljómsveitina Sign og hryllingsmyndir á síðunni: Jeg er einsog jeg er, afþví að jeg skrítnaðist! Einhverra hluta vegna er titillinn á pistlinum Aumingja Lénharður lávarður.
Er þetta eitthvað Akureyrskt?

Mættir líka uppfæra úrelt linkasafnið þitt í leiðinni, eðall dauðra linka þar, vantar bara heimasíðu fyrir mansjúríusveppinn á Íslandi til að fullkomna það.
Heyrðu, já. Takk fyrir það. Það stendur nú til að endurskoða þetta, eins og svo margt annað á þessari síðu, og hef ég oft haft uppi falleg fyrirheit um það.
Þangað til þykir mér nú samt frekar vænt um þessa linka-síðu, en hún var mér mikilvæg HTML-æfing á sínum tíma, þannig að ég held henni þarna inni um sinn.
En hvað var þetta með mansjúríusvepp?

Allar kellingar í bænum voru með risasvepp í rækt í skál og supu svo seyðið af honum sér til almennrar heilsubótar og megrunar.
Þetta var svona næntís hörbalæf, og einhvers staðar í kimum netsis er örugglega hægt að finna úrelta geocities heimasíðu um kosti og notkun sveppsins.
(Inanimate Carbon Rod)