Sveinbjörn benti mér á eitt sérkennilegasta video-klipp sem ég hef séð.
Um er að ræða sovéskt sjónvarpsefni, þar sem söngvarinn Edward Hill lætur í ljós fáheyrða sönghæfileika sína.
Ég veit ekkert meira um þennan undarlega mann og fólk verður bara sjálft að finna sér til upplýsingar um hann, ef forvitnin ber það ofurliði.
Athyglisvert líka, að sjá hversu psychadelískir Rússarnir voru á þessum tíma. Ekki hefði ég trúað þeim til þess.
Ég elska youtube fyrir nákvæmlega þetta.

Þetta myndskeið var algerlega essentíal í búktalskennslu þangað til fyrir nokkrum árum.
Hér er t.d. hægt að heyra lagið Pis. Ætti að gleðja sérhvern Dana.
http://kkre-1.narod.ru/aedon/pis.mp3
(Steinn)