24.2.2010 | Ummæli

"Ummæli
24.02 2010 kl.08:53
Tilkynna óviðeigandi ummæli!

Slóð

Íslendingar voru svo lengi vankaðir í áfalli að þeir áttuðu sig ekki á óréttinum sem þeir voru beittir.

Íslendingar voru í losti í ár. Gátu hvorki séð né hugsað skýrt.

Fullir sjálfsásökunar sögðu Íslendingar já og amen við kolólöglegum kröfum Breta og Hollendinga án þess að átta sig á samhengi hlutanna.

Án þess að skilja hve alvarlegar aðgerðir fólust í beitingu hryðjuverkalaga á Ísland. Og af breska forsætisráðherranum að lýsa yfir gjaldþroti Íslands.

Eins og þetta væri aukaatriði.

En þær aðgerðir voru aðalatriði í málinu. Ekki aukaatriði.

Þær voru grófasta árás sem gerð hefur verið á vestrænt ríki innan Nato frá stofnun.

Það var ekki fyrr en forseti Íslands neitaði að skrifa undir afarkostina, sem þjóðin áttaði sig alminnilega á þeim órétti sem hún hefur verið beitt.

Breska ríkisstjórnin sem bráðum er á förum er og var gerandinn í málinu. Holland er í eftirdragi.

Íslendingar eiga í samningaviðræðum við fallandi ríkisstjórnir í Icesafe.

Hver veit nema hollenska ríkisstjórnin hafi sprungið vegna Icesafe þótt stríðið í Afganistan væri kynnt sem tylliástæða.

Íslendingar eiga ekki að láta lögleysingja segja sér fyrir verkum. Hvað þá að setja sér afarkosti.

Látum þetta ofbeldisfólk segja nei við umsókn Íslands í Evrópusambandið.

Það afhjúpar hið sanna eðli þeirra fyrir heimsbyggðinni.

Þessir menn tala eins og orð þeirra séu ‘endanleg’ meðan sannleikurinn er sá að þeir eru í sjálfheldu.

Bráðum valdalaust fólk býður Íslendingum enga afarkosti.

Íslendingar geta ákveðið sjálfir einhliða hvað þeir vilja gera í Icesafe.

Íslendingar eiga að leggja fram sanngjarnt og rausnarlegt lokatilboð sem er þeim sjálfum þóknanlegt og segja: Take it or leave it."


Söguskoðun Jónasar frá Hriflu?


12 comments
(Arnaldur)




12 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 24.2.2010 17:45

Sveinbjörn

Opinions are like assholes. Everyone's got one and they all stink.

[ Reply ]

Grétar at 25.2.2010 22:49

Grétar

Það er fáránlega gaman að wanka í áfalli.

[ Reply ]

Arnaldur at 25.2.2010 23:08

Arnaldur

LOL!

[ Reply ]

Steinn at 26.2.2010 13:26

Steinn

Shit hvað kommentakerfi Eyjunnar er stútfullt af kolgeðsjúku fólki. Ég verð alltaf jafn hissa og hlessa og all það.

[ Reply ]

Arnaldur at 26.2.2010 14:49

Arnaldur

Já. Fólk er brjálað maður... Ég er nú alltaf að reyna að stilla mig um að pósta svona niðurgangi, en stundum bara verð ég að setja þetta inn. Þetta verður oft svo epískt og dramatískt.

[ Reply ]

Steinn at 26.2.2010 13:27

Steinn

BTW. er að fíla nýju myndina mína í kerfinu þínu Naldó.

[ Reply ]

Arnaldur at 26.2.2010 14:49

Arnaldur

Danke. Ég er svona hægt og rólega að dunda við að skipta út myndum í kommentakerfinu. Og setja nýjar inn.

[ Reply ]

Grétar at 1.3.2010 18:07

Grétar

Ég er líka helvíti ánægður með þetta. Þetta er ein af fáum decent myndum sem eru til af mér.

[ Reply ]

Grímur at 6.3.2010 19:11

Grímur

Ein af fáum myndum sem til er af þér þar sem þú ert decent?

[ Reply ]

Grétar at 6.3.2010 19:28

Grétar

Já, eða það.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 21.3.2010 10:58

Sveinbjörn

Mánuður eða svo án uppfærslu, búú...

[ Reply ]

Arnaldur at 22.3.2010 11:15

Arnaldur

Já. Ég veit. Ákvað að taka mér smá hlé. Meðan ég endurskoða hvað ég ætla að gera með þessa síðu.

Það og poweradaptorinn minn brann yfir og því get ég ekki notað tölvuna mína í þetta. Ég hef ekki svo mikinn áhuga á að standa í þessu í gegnum aðrar vélar.