Undanfarið hef ég aðeins verið að grúska í sólmyrkvum. Ég hef komist að því að það verður ansi tilkomumikill sólmyrkvi hérna 12. ágúst, árið 2026.
Almyrkvinn kemur reyndar ekki til með að vara í nema rúmar 2 mínútur, en klárlega er myrkvinn á besta tíma, um kl. 17, í ágústmánuði þegar sólin er hátt á lofti.
Ég hef svo sem aldrei verið mikið fyrir það gefinn að plana mjög langt fram í tímann. En það er spurning um að bóka þægilegt herbergi á Hótel Búðum fyrir þennan dag?
Svo er bara að vonast eftir tiltölulega heiðskírum himni.
The password to post a comment is: