Results for 2011-03

30.3.2011 | Legend of the Fist

fistoflegend

Þeir sem hafa séð grundvallar-Hong-Kong-myndina Fist of Legend munu kætast yfir nýlegum fréttum. (Fólk getur nálgast þetta augnakonfekt hjá mér.)

Nú kemur senn út kvikmyndin Legend of the Fist sem ég fæ ekki betur séð en sé einhvers konar epísk endurgerð á gömlu myndinni með Jet Li.

Reyndar er Jet Li myndin frá 1994 líka endurgerð á Bruce Lee klassíkernum Fist of Fury. Nýja myndin er í leikstjórn Andrew Lau, sem gerði þríleikinn Infernal Affairs, sem var aftur lauslega endurgerð af Martin Scorsese sem The Departed.

Damn. Ekkert smá flókin ættfræði í gangi þarna. Allavega...

Ég hafði heyrt eitthvað af þessu verkefni, og núna datt ég allt í einu inn á fullburða sýnishorn úr nýju myndinni.

Mjög tryllt, og lítur vel út. Svo má líka ímynda sér að þetta sé einhverskonar Kato reference, þetta með grímuna. Allavega finndist mér það huggulegt að tengja þetta eitthvað við Bruce Lee sjálfan.

Hver vill koma með mér á Legend of the Fist í bíó!?!

Að lokum vil ég ítreka það við fólk að kíkja á Fist of Legend með Jet Li, þó það sé eina "Kung-Fu" myndin sem það mun nokkurntíman horfa á. Hún er fáránlega góð og flott og skemmtileg. Það mætti reyndar alveg bæta fleirum myndum við 'must see Hong Kong mynda-listann', en látum þetta nægja í bili.




30.3.2011 | "Could I have some more, sir?"

Ég var að lesa mér til um Geir Haarde á Wikipedia þegar ég rakst á þessa mynd af þessari hálf hallærislegu sendinefnd sem fór til Washington að betla út lengri dvöl fyrir Bandaríkjaher.

pentagonteaparty

Þetta minnti mig á skopteikningu sem gerði þessum sendiferðum skil, sem ég teiknaði um svipað leyti eftir pöntun frá Hjalta Snæ. Ég byggði skopteikninguna á frægri myndskreytingu eftir George Cruikshank við Oliver Twist.

OliverTwist Cruikshank

Á myndinni minni hafði ég skipt Oliver Twist út fyrir Geir Haarde. George Bush Jr. og Donald Rumsfeld voru þá í hlutverki forsvarsmanna munaðarleysingjaheimilisins. Í bakgrunninn mátti svo sjá Valgerði, Halldór Ásgrímsson og Björn Bjarnason, í hlutverki hinna munaðarleysingjanna.

Ég hef alltaf verið nokkuð ánægður með mína útgáfu, enda var hún velheppnuð og skírskotunin leyndi sér ekki. Ég notaði hana meira að segja í BA-ritgerðina mína, sem dæmi um pólitíska ádeiluskopmynd. Ég varð því nokkuð leiður þegar ég uppgötvaði að ég hef glatað myndinni. Hún finnst hvergi á tölvutæku formi, og upprunalega blýantsteikningin er orðin svo máð að hún er nokkurn vegin óþekkjanleg.

Maður hefði haldið að það væri í lófa lagið að heimta myndina úr BA-ritgerðinni sjálfri, en mér til enn frekari hryllings uppgötvaði ég að ég hef einnig glatað öllum útgáfum af BA ritgerðinni minni, nema frum-uppkastinu.

Þetta er nú aldeilis svekkelsi.


9 comments
(Steinn)



29.3.2011 | Er það ekki svona kaffi með smá skoti af heitu vatni útí?

Ég ætlaði að vera búinn að skrifa þessa frásögn inn fyrir nokkru síðan. Hef bara átt nokkuð annríkt. Hættan er svo auðvitað sú að maður hætti við að setja niður svona sögur úr hversdagslífinu eftir því sem lengra líður frá. Einhvernvegin finnst manni þær minna topical eða relevant, sem er auðvitað algert kjaftæði. Ég ætla allavega að setja þetta niður núna, þó ekki sé nema fyrir mig sjálfan, svo ég gleymi ekki snilldinni.

separatorline2

Cinema Paradiso - Nú í raunveruleikanum!

Ég fór í bíó í fyrsta sinn í langan tíma um daginn. Ekki svo að skilja að ég hafi eitthvað minni áhuga á bíómyndum eða því að fara í bíó. Tækifærin láta bara standa á sér þegar maður er með svona lítið barn á heimilinu, og svo hefur mér reyndar þótt framboðið af athyglisverðum myndum takmarkað. Hún er skelfileg þessi þróun mála, að nær öll bíó landsins varpi bara upp einhverri amerískri ræpu. Ýmist endurunnum tölvuleikjum eða barnaefni, endurskrifuðu fyrir fullorðna.

Ég fór því í Bíó Paradís, og varð mjög hrifinn.

rokland plakat

Bíó Paradís, þrátt fyrir afleita nafngift hefur nefnilega yfir einlægum sjarma að búa. Þar er einnig alvöru úrval kvikmynda sem eru framleiddar með annað en sölutölur afleiddra leikfanga í huga.

Í þetta sinn fór ég að sjá íslensku bíómyndina Rokland, og þótti hún bara nokkuð fín. Vel leikin og skemmtileg, þótt það hefði mátt endurskrifa og klippa niður þennan endalausa endi. En ég hafði raunar ekki hugsað mér að fjalla neitt af ráði um kvikmyndina, heldur dvöl mína í anddyri bíósins fram að sýningu.

Við mættum tímanlega, ég og Sveinbjörn félagi minn og notuðum tækifærið til að virða herlegheitin fyrir okkur, þar sem hvorugur hafði komið áður í Bíó Paradís. Ég tók strax eftir því að í nammisölunni stóð gullfalleg, risastór espresso-vél, og á krítartöflunni til hliðar var búið að skrifa upp nöfn á seiðandi kaffidrykkjum ásamt verði.

Espresso - Americano - Café Latte

Verandi kaffisvelgurinn sem ég er, sá ég ilmandi americano í hillingum og hugsaði með gleði til bíóferða í Danmörku, þar sem maður gat haft alvöru kaffi með sér inn á sýningar. Þvílíkur munaður.

americano1

Ég bað drenginn sviplega um að útbúa handa mér americano, og að hafa hann tvöfaldan frekar en ekki. Það kom eilítið fát á drenginn, en hann tók vel í beiðnina og hófst handa við að útbúa drykkinn.

Aðfarirnar voru brösulegar, og hann virtist eiga bágt með að átta sig á vélinni. Opnaði skúffur og skápa í sífellu og horfði leitandi í kringum sig, auk þess sem hann skrúfaði frá, og lokaði fyrir vatnið í vaskinum við hlið vélarinnar. Að lokum virtist hann þó vera kominn á snoðir um eitthvað, skrúfaði hressilega frá vatninu, og komst í gang með framleiðsluna.

Við höfðum verið einir í anddyrinu fram að þessu, og því svo sem engin pressa á drengnum, en nú var fleira fólk drifið að, enda styttist í sýningu. Pilturinn var hinsvegar einn um afgreiðslu á nammi (og kaffi) og verandi svo upptekinn sem hann var við þennan eina kaffibolla, máttu aðrir gestir bíósins bíða þar sem þeir stóðu og gáfu mér og drengnum illar gætur til skiptis. Að lokum barst þó aðstoð þegar stúlkan úr miðasölunni kom aðvífandi til að aðstoða drenginn og gat tekið pressuna af honum þannig að hann gæti einbeitt sér alfarið að kaffigerðinni.

Drengurinn vindur sér þá sveittur að mér og spyr:

-"Ehhh... Hérna, americano... er það ekki svona kaffi með smá skoti af heitu vatni útí?"

Ég hélt það nú og drengurinn sneri sér við og hélt áfram að sýsla. Nokkru síðar tek ég eftir því að bollinn virðist vera tilbúinn hjá honum, en þá vindur hann sér að vaskinum og lætur renna sjóðandi heitt vatn í litla könnu sem hann hellir svo út í kaffið.

-”Eitt stykki americano, gjörðu svo vel, takk fyrir!” sagði drengurinn hróðugur.

Ég og afgreiðslustúlkan við hlið hans störðum bæði agndofa á hann full vantúar. Sjálfur vissi ég ekki hvernig ég átti að bregðast við þessu.

-“Sko, hérna, þú getur ekki gert þetta... svona bara sett heitt vatn út í kaffið...” sagði stúlkan.

-”Ha? Nei, ég bara. Heyrðu... ahhh... Heyrðu, ég setti bara smá svona heitt vatn útí, er það ekki... er það ekki í lagi, eða?” spurði drengurinn mig.

-”Æi, heyrðu, svaraði ég honum, ég get nú ímyndað mér margt annað sem ég myndi setja út í kaffið mitt á undan hitaveituvatni. Það er ekki alveg geðslegt... Eigum við ekki bara að sleppa þessu?”

-Já, neinei, heyrðu, ég græja bara nýjan fyrir þig. Það er ekkert mál.” svaraði drengurinn og lauk þar með málinu.

Og þannig var sagan af því hvernig ég endaði með fyrirtaks kaffibolla inni á Roklandi.

Ég velti því samt óhjákvæmilega fyrir mér hvernig þessi staða gat nokkurntíman komið upp.


12 comments
(Sindri)



23.3.2011 | 30 Rock

Boy Better Know, að ég á afmæli í dag.

Til hamingju með 30 afmælið, Arnaldur!

30 ROCK




22.3.2011 | Mottumars - Þátttakandi 1968

Ég gleymdi að setja það inn hérna, (enda fór þetta í hálfgert rugl,) en ég er með prófíl í þessu mottumars-framtaki.

mottumars1968

Í sannkölluðum Prisoner-stíl hefur mér verið úthlutað númerinu 1968, sem ég held að við getum bara öll verið nokkuð ánægð með.

Hérna er prófíllinn minn.

Ekki vera neitt hrædd við að gefa pening. Þetta á allt að vera voðalega huggulegt, gegn krabbameini og svona.

Annars finnst mörgum þetta eitthvað mjög annarlegt og óhugnanlegt. Hér er heill pistill um hvað þetta er glatað framtak, að því að ég fæ best skilið vegna þess að þetta er dæmi um "hjarðhegðun".

Ég veit reyndar ekki hvernig maður á að reka átak sem reynir sig á samhent vinnubrögð eða samskot, nema með því að reyna að fá fólk til að vinna saman í einingu.

Ég vona að það geri mig ekki að nasista. Það leynist þá allavega nokkuð þykk Chaplin-motta inni í þessu öllu saman ef menn vilja fara með það alla leið...




22.3.2011 | Upprisa Z

Ég hef núna verið að vinna dálítið í vefnum mínum undanfarnar vikur, eins og sjá má. Samhliða þessu verkefni hef ég reynt að pikka upp smá CSS (gamli vefurinn var í raun bara töfluvefur). Ég er bara sæmilega ánægður með útlitið eins og það er í bili, þótt ég fái stundum á tilfinninguna að þetta sé kannski ívið of þungt. Kannski breyti ég því á næstunni.

Reyndar á ég eftir að gera töluvert margar breytingar; það er ennþá ýmislegt sem virkar ekki sem skyldi (t.d. er kommentakerfið skrítið), og annað er bara óþekkt og pirrandi. Þetta er eitthvað sem gerist þegar maður byrjar á öfugum enda í ferlinu. Ég er búinn að vera að fikta í allskonar CSS-kompónentum sem ég skil ekkert alveg nógu vel (sem Sveinbjörn reddaði mér með til bráðabirgða).

Nú vil ég meina að það skipti höfuðmáli að vera ánægður með vefinn sinn, og finnast maður heimakominn. Ég var orðinn hundleiður á gömlu síðunni, og fannst hún aldrei almennilega endurspegla það sem ég vildi útlitslega séð. Þá hættir maður að nenna að halda vefnum við, og framtakið dettur allt niður. Dálítið eins og að búa í íbúð þar sem allt er hálfklárað eða skítugt. Maður gefst á endanum upp við að reyna að hafa hlutina í lagi og vill ekkert endilega fá fólk í heimsókn. Þá er kominn tími á allsherjar tiltekt eða flutninga.

Annað sem ég hef tekið eftir sem tengist þessu eru efnistökin (og, já ég hef reynt að gera þessu skil áður). Þegar ég renndi yfir efnið sem ég hef verið að birta hérna tók ég mjög glögglega eftir einu. Fram til ársins 2009 einkennast innslögin af kerskni, og ýmis sprelli og gríni. Allt almennt frekar jákvætt og inn á milli skemmtileg innslög þar sem mér tókst að skapa eitthvað áhugavert.

Eftir hrunið fór ég að taka eftir dálítið öðrum karakter á síðunni, eins og ég hef komið inn á áður. Þetta voru oft löng og nöldursleg innslög og gjarnan frekar neikvæð. Kannski var það einna helst af því að ég hef núna undanfarið, í allt of langan tíma, verið of upptekinn af umræðunni eins og hún birtist bæði á netinu og í öðrum miðlum. Það segir sig sjálft að ef maður er fastur í sorarvilpunni lungann úr deginum (eins og ég neyðist illu heilli til sökum vinnu minnar), þá byrjar maður sjálfur að lykta frekar illa.

Ég gerði mér reyndar strax grein fyrir þessu fyrir ári síðan og reyndi þá að setja mér einhverja skárri ritstjórnarstefnu sem átti stemma stigu við þessari óheilla þróun, en ég hugsa að það hafi bara endanlega drepið síðuna. Djúpt sokkinn og gegnsýrður af þessari leiðinlegu umræðuhefð hérna, fann ég mig ekki í að semja neitt skemmtilegt sjálfur. Síðan mín varð þess vegna bara eitthvert afdrep fyrir fyndin vídjó á youtube og skrítnar myndir af tumblr.

Klárlega er facebook betri vettvangur ef maður ætlar bara að regurgitate-a einhverjum fyndnum linkum. Þar getur maður líka sent út reiðar upphróparnir með inn á milli, án þess að þurfa að vera hið minnsta skapandi í kringum það.

Jæja. Og þó. Ég birti þó í það minnsta 2-3 greinar sem ég lagði þó nokkra vinnu í og er sæmilega ánægður með.

Allavega. Ég hef svo sem ekkert ákveðið endanlega með tíðni innslaga, efnistök eða annað í bili. Ég veit bara að ég hef verið að koma hingað daglega undanfarið og unnið lítillega í síðunni, sem ég held að sé ávísun á eitthvað gott. Maður ræktar það sem manni þykir vænt um.

Grunnhugmyndin er þó kannski helst að reyna að nota síðuna sem vettvang fyrir frumlegt og skapandi efni, sem ég get hugsað mér að koma á framfæri á sómasamlegan hátt. Samhliða þessu ætla ég að vinna í rólegheitum að síðunni og kenna mér ýmislegt því tengt í leiðinni. Hún gæti því tekið sýnilegum breytingum á næstu misserum og allur gangur á því hvað kemur hérna út.

Það geta allir póstað linkum á facebook. En einhver verður að búa til linkana fyrir fólkið.


1 comments
(Steinn)