Ég útbjó enskan morgunverð á sunnudaginn, eða því sem næst. Hér á landi er fremur erfitt að nálgast nákvæmlega rétt hráefni, en sérstaklega hefur mér þótt skorta boðlegar morgunverðarpylsur.
(Ég kýs að gera beikonið ekki að sérstöku umtalsefni í þetta sinn.)
Lengst af hef ég brúað bilið með Bratwurst pylsum frá SS, en þær eru bæði hæfilega smáar og einnig léttar í maga svona í morgunsárið. Vandamálið er þó að bragðið er ekki allskostar rétt, enda er sú pylsa skyldari þýskum steikarpylsum (eins og nafnið gefur til kynna) en breskum 'bangers'.
Mér til mikillar ánægju fann ég um daginn enskar morgunverðarpylsur, en það er ný vara frá kjötvinnslufyrirtækinu Kjöt-Pól.
Skemmst er frá að segja að bragðið var kórrétt og greinilega hágæða hráefni í pylsunum. Bæði voru sperðlarnir þó eiginlega allt of stórir fyrir minn smekk og einnig mun þéttari en ég kæri mig um. Það er því eiginlega hægt að tala um karlmannsverk að sporðrenna tveimur svona 'bangers'. Mögulega gæti þetta þó helgast af því að pylsurnar eru seldar frosnar, og kannski gaf ég þeim ekki nægan tíma til að þiðna áður en ég steikti þær.
Ég ætla að gefa þeim annan séns, þíða þær yfir nótt og prófa bæði steiktan og grillaðan variant af þessari pylsu. Kannski leynir hún á sér.
Allavega þykir mér rétt að benda fólki á Kjöt-Pól. Þeir eru greinilega með mikið úrval af allskyns kjötvöru, og það sem ég hef séð frá þeim er greinilega gæða stöff.
Breskar pylsur innihalda gjarnan meira magn af mjöli en þýskar frænkur þeirra. Núna er víst kominn EU-staðall um hvað pylsur verða að innihalda mikið kjöt.
Mig minnir að ég hafi heyrt eitthvað svona evrópu-staðla upphróp (sem Bretarnir eru svo þekktir fyrir), einmitt í tengslum við breskar pylsur. Með tilkomu staðalsins þýddi það að einhverjir framleiðendur þurftu aktúalt að fara að nota meira kjöt í pylsurnar sínar. Þetta þótti mikið hneyksli í Bretlandi og fólki þótti þetta hin grófasta afskiptasemi frá meginlandinu.
Guð forði þeim frá því að borða einhverjar evrópupylsur sem innihalda alvöru kjöt.
"Oh come on, Mark. Germans? Sausages? Do I have to spell it out? The sausage-munching Boche. Fritz, the bratwurst guzzler."
Mér fyndist frekar fyndið er Kjöt-Pól væri íslenskt útibú aðþjóðlegu keðjunnar Meat-Pole...
alas...
The password to post a comment is:
(Arnaldur)