7.4.2011 | Adam Curtis_The Medium and the Message

Ég bara verð að benda fólki sem á leið hérna um síðuna, á bloggsíðu Adam Curtis.

adamcurtis01

Aðalsteinn Hákonarson, snillingur, benti mér á þessa síðu, sem ég vissi ekki af, þótt ég hafi annars haft mikinn áhuga á myndum Curtis í nokkuð langan tíma.

Curtis hefur gert heimildamyndir og -þætti um allskyns þróun sögulegra atburða, oftar en ekki út frá hugmyndasögulegu samhengi. Myndir hans varpa oft nýju ljósi á atburði og þróun mála sem maður hafði ekki allar forsendur til að skilja til fulls áður.


Ég mæli sérstaklega með The Power of Nightmares, The Trap og þáttaröðinni Pandora's Box.

Annars eru þessar myndir hans þess eðlis, að þegar maður hefur horft á eina, þá eiginlega getur maður ekki hætt.

Og nú getur maður lesið bloggið hans á milli, sem er ekki síður relevant...


3 comments
(Arnaldur)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 8.4.2011

Sveinbjörn

Þú gleymir The Mayfair Set, sem er með þeim allra bestu sem hann hefur gert.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 8.4.2011

Sveinbjörn

Frábær bloggsíða hjá honum, btw.

[ Reply ]

Arnaldur at 8.4.2011

Arnaldur

Já. Hún er frábær.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment