Ég er búinn að beita mig hörðu til að fara ekki að diskútera þetta ógeðslega gubbumál sem skíta-Icesave er. En hérna er skoðun mín í örstuttu máli, ef einhverjum skyldi ekki vera skítsama.
Álit mitt er það að allt þetta mál sé það leiðinlegasta og bjánalegasta sundrungarmál sem þessi blessaða þjóð hefur nokkurn tíman valið að taka upp á arma sína.
Sjálfur ætla ég að segja Já við þessari vitleysu og vona að ég þurfi aldrei að minnast framar á Icesave. Það er ekki af því að ég sé svona upprifinn yfir þessum samningum, heldur finnst mér þetta það eina boðlega í stöðunni. Fyrir því finn ég eftirtalin rök:
Annars finnst mér ein góð vísbending styrkja mig í minni afstöðu, og það er að ég virðist vera á öndverðum meiði við öfgafólkið. Þegar husjónamenn lengst til vinstri og hægri ná saman um niðurstöðu, þá er voðinn vís...
Ég vil gera orð Atla Más, vinar míns að mínum eigin: "Þetta er bara eins og klamedía: taktu pilluna, losaðu þig við þetta og mundu bara að passa þig og nota smokk í framtíðinni."
Um skoðanir fólks á þessu máli (including mine own) sem fólk hamast við að gubba upp úr sér og þröngva upp á aðra, vísa ég bara í Doug Stanhope - ON WHY YOUR OPINION DOESN'T MATTER
The password to post a comment is: