12.4.2011 | Af stórhuga mönnum

yuri1

Nú eru 50 ár liðin frá því að maður fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolfið, út í geim og hringsólaði í kringum jörðina.

Það er fullkomnlega ótrúlegt.

Á þeim tíma, sem Yuri Gagarin fór í sína afdrifaríku ferð, var það mönnum hvatning til dáða. Ekkert var ómögulegt og framtíðin innan seilingar.

Þessa dagana virðist vera erfitt um vik að hvetja fólk til dáða, eða góðra verka.

Vonandi getur fólk fljótlega hætt að rífast um drasl sem er ómerkilegt, og farið að leyfa sér að hugsa um stórfenglega hluti.

yuri2
Fáránlega 'rocking' minnisskjöldur. Svo er hann líka stílhreinn í þokkabót. A+



0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment