Mig langar til að benda á fyrirtaks útvarpsþætti um málefni Mið-Austurlanda á RÚV.
Þættirnir heita Í sporum hinna og taka fyrir eitt land í hverjum þætti.
Þættirnir eru þrír talsins; um Líbanon, Írak og Palestínu. Því miður er þó eingöngu hægt á nálgast seinni tvo (um Írak og Palestínu) á RÚV-vefnum eins og sakir standa. Von mín er að þeir sjái sóma sinn í að gera þetta allt saman tiltækt sem podcast fljótlega.
Þættirnir skoða nokkuð gaumgæfilega ýmsa þætti sem eru hverju landi viðkomandi, svo sem sögu, pólitík, og samfélag á hverjum stað.
Allt þetta er gert á nokkuð auðskilinn hátt og með góðu flæði, og reynslusaga íbúanna færir okkur nær veruleikanum sem um er fjallað.
Endilega tékka á þessu.
The password to post a comment is: