Vá, ég hef kannski minnst á þetta áður. En ég var allavega að enduruppgötva heilagan Arnald, fyrir slysni.
Ég rakst sem sagt á þetta brugghús frá Texas (af öllum stöðum) sem heitir 'Saint Arnold Brewing Company' og er víst eitt elsta craft-brugghúsið í Texas.
Heilagur Arnaldur er kaþólskur dýrðlingur sem virðist reyndar hafa verið frekar mikil pussa, ef marka má wikipediu-færsluna hans, en samt frekar góður gaur. Allavega, þá var hann alltaf að reyna að hella alla fulla, og reyndi að ljúga að fólki að bjór væri geðveikt "Healthy, healthy - fresh, fresh!".
Þess vegna er heilagur Arnaldur, verndardýrðlingur bruggara. (Þessu er sérstaklega beint til Sveinbjarnar.)
Reyndar er líka til annar gaur sem er líka að pósa sem verndardýrðlingur bruggara (og er gjarnan kallaður Arnold), en hann heitir samt Arnulf sem er klárlega miklu frekar 'Örnólfur'. Sá gaur er reyndar pínku meiri töffari og var eitthvað tengdur inn í Merovingian-mafíuna. Það mikilvægasta er þó að pabbi hans hét Arnaldur fo' sho'!
Það er allavega öruggt að öllum þessum Arnöldum hefur þótt mjög vænt um bruggið sitt í sögulegu samhengi.
(Auður Ástráðsdóttir)