Results for 2011-05

31.5.2011 | Helvítis Angry Birds

Það hefur almennt hamlað mér í lífinu undanfarið að ég hef verið að spila leikinn Angry Birds á netinu. Sökum þess, er ég búinn að vanrækja allskyns skyldur, svo sem að uppfæra hér.

Einhverra hluta vegna er Angry Birds alveg fáránlega 'addictive' leikur, eins bjánalegur og hann er. Þetta er svona leikur, eins og Tetris, Bubbles og Minesweeper; mann fer að dreyma hann á nóttunni og eyðir þannig jafnvel hvíldartímanum sínum, sofandi, í að skjóta einhverjum aulalegum fuglum úr teygjubyssu.

angrybirdsthumb

Eins og sjá má hér að ofan, er ég samviskusamlega búinn að hreinsa öll borðin með þremur stjörnum (jafnvel 'chrome-aukaborðin'). Ég setti saman þessa samklipps-mynd sem sýnir þennan glæsta árangur (smellið á myndina til að sjá hana stærri).

Þá er hægt að halda áfram með lífið sitt...




26.5.2011 | Þórsari

thorsaari

Ætli Þór Saari sé í rauninni Þórsari?


2 comments
(Arnaldur)



23.5.2011 | Raungildisendurmat I

Nýleg umfjöllun Kastljóssins um yfirgengilega fíkniefnaneyslu meðal ungmenna í Reykjavík hefur fengið mig til að leiða hugann að góðum pilti sem er ekki lengur hér.

Það var einmitt sprauta sem ýtti honum yfir brúnina.

Kynni mín af honum komu til á undarlegan hátt, og voru kannski ekki svo langvinn eða ítarleg, en nóg til þess að mér verður hann hugleikinn af og til.

Reyndin er sú að þar fór maður sem var fyllilega ófær um að stjórna eigin lífi, en þráði þó sennilega fátt meira. Hann kom til mín í eitt eða tvö skipti leitandi að aðstoð í þessu skyni og við áttum ágætlega saman þegar þannig bar við. Það er merkilegt hvað ráðvillt fólk getur gefið af sér skakka mynd út á við. Það er oft ekki til að hjálpa því í stöðu þeirra. Þeir sem virðast sterklegir og ógnvekjandi út á við eru oftar en ekki beygðir, sneyptir og hraktir inn við beinið.

Það er ekki fyrr en löngu síðar að ég sé heildarmyndina utan um þennan villuráfandi dreng og geri mér betur grein fyrir stöðu hans og vanda. Þó kem ég sennilega aldrei til með að skilja hann til fulls.

Það er ekki öll vitleysan eins.

"Veistu það Arnaldur... Maður hugsar oft um Kaupmannahöfn eins og hún sér bara eins og Reykjavík. Nema bara aðeins stærri. — Kaupmannahöfn er samt ekkert eins og Reykjavík. Það er alveg ofboðslega mikið af skít hérna sem ég hefði aldrei trúað."




11.5.2011 | Silfur Egils

Ég horfi nokkuð oft á Silfur Egils. Mér finnst þátturinn mikilvægur að mörgu leyti - sérstaklega þar sem megnið af umfjöllun Sjónvarpsins um pólitík fer fram á þessum klukkutíma. Ég segi hér umfjöllun til aðgreiningar frá áróðrinum sem Sjónvarpið sendir út svona alla jafna.

Silfur Egils er þó langt í frá að vera dæmi um óaðfinnanlega dagskrárgerð. Ef til vill mætti í einhverjum tilvikum tala um sjálfhverfu, auk þess sem 'media-presens' Egils Helgasonar getur oft verið pínku yfirþyrmandi. Það verður þó ekki frá Agli tekið að hann sinnir hlutverki sínu af áhuga og alúð. Hann skipar í reynd mikilvægan sess í íslenskri umræðu. Sama hvað fólki þykir annars um hann.

Kannski var það þess vegna sem ég skellti saman klippimyndinni hér að neðan. Kannski var þó engin sérstök ástæða fyrir því, önnur en sú að mér þótti þetta fyndin hugmynd, að hafa Egil í hrókasamræðum við sjálfan sig.

Í raun er það hugmynd sem er komin frá Friðriki Stein, vini mínum, en hann útbjó einnig keimlíka mynd. Það verður á endanum að segjast eins og er, að panel-formið á Silfrinu býður þessu heim.

silfuregilssmall

Nær samstundis eftir að ég birti myndina fyrst, fór að bera á því að áróðurssíðan AMX.is notaði hana til að myndskreyta alla þá níð um Egil sem þeir sjóða saman nær daglega.

Ég verð að viðurkenna að ég lenti í smá vandræðum með sjálfan mig. Ég er fyrir það fyrsta mjög ósammála nær öllu sem er skrifað inn á þennan AMX-vef. Einkum og sér í lagi er mér í nöp við þá lítilmannlegu persónuníð sem vefurinn birtir nafnlaust undir heitinu "smáfuglahvísl", en svo vill til að þar hefur myndin mín verið reglulega birt án leyfis. Þá vil ég síst af öllu að mín persóna sé á einhvern hátt spyrrt við þennan vef, eða að það líti svo út sem ég sé á mála hjá þeim (eins og kom reyndar fyrir nokkuð fljótlega). Ég á ekki að þurfa að svara fyrir slíkt.

Ég verð að viðurkenna að ég var síðan ekki alveg viss um hvað ég átti að leggja út af þessu. Í mínum huga er myndin einungis góðlátlegt grín eða einhverskonar umsögn um samtímann. Í höndum AMX verður myndin eitthvað allt annað. Hún verður hlaðin neikvæðu gildi þegar hún stendur með öllum þessu rætnu skrifum um Egil. Hvort ætti heldur að ráða því hvað mér eða öðrum finnst um myndina?

Á sama tíma hefur einkum þrennt komið til, þannig að ég hef ekki viljað bregðast við þessu, fyrr en nú.

  • Ég hef ekki viljað vekja neina óþarfa athygli á þessum leiðinda-vef. (Takið eftir því að ég forðast að hlekkja á þá.)
  • Myndin er samsett úr 6 skjáskotum af vef RÚV. Er þetta mál RÚV? Eða er þetta mitt mál? (Ég er ekki einu sinni fullviss um hvaða reglur gilda um skjáskot og notkun þeirra.)
  • Ég birti myndina upphaflega á facebook, þannig að ég veit ekki almennilega hvaða reglur gilda um höfundarétt á myndinni.

Nú þykir mér þó fullreynt að reyna að leiða þetta hjá mér. Nú síðast í dag voru skórnir gerðir að því, að hjá mér lægi einhver rætni í garð Eglis Helgasonar, sem er fjarri sannleikanum og mér þykir leitt að þurfa að svara fyrir.

Að endingu var því skotið að mér að ef til vill væri eina góða nálgunin á þetta hvimleiða vandamál að taka þetta svona saman í pistli eins og þessum, þar sem AMX-vefurinn væri tilgreindur og svertur ('named-and-shamed')* fyrir að ganga svona gróflega um höfundarrétt og hugverk annarra. Það er þá hér með gert.

Nú má fólk vita að utan þess að leggja stund á ómerkilegt skítkast og persónuníð, þá notast AMX.is við hugverk annarra þvert á vilja höfundar.

Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir því áður, en í raun á þetta merkilega vel við alla þessa umræðu um höfundarétt og frjálsa notkun hugverka sem hefur verið í gangi undanfarið. Ef til vill á þetta allavega alveg jafn vel við í umræðunni og allt havaríið í kringum þessa sundurmignu blómabók. Í tengslum við það get ég ekki annað sagt en að mér gremjist þessi notkun AMX á myndinni minni. En á sama tíma er svo kannski sáralítið hægt að gera við því...


*Fólk mætti endilega leggja til betri þýðingu á þessu orðasambandi.


3 comments
(Sveinbjörn)



11.5.2011 | Jarðarupprás

Þegar maður skoðar myndir af jörðinni utan úr geimnum, þá finnst manni allt dægurþras um leiðinlega hluti hálf-ómerkilegt. Það verður eiginlega hálf-óskiljanlegt hvernig fólk nennir að eyða svona miklu af tíma sínum í ómerkileg rifrildi um allt og ekkert.

earthrise

"You develop an instant global consciousness. A people orientation. An intense dissatisfaction with the state of the world and a compulsion to do something about it. From out there on the Moon, international politics look so petty. You want to grab a politician by the scruff of the neck and drag him a quarter of a million miles out and say: 'Look at that, you son of a bitch!'"

-Appollo 14 astronaut, Edgar Mitchell


1 comments
(Kalli)



11.5.2011 | Íslandsmyndir úr safni Cornell háskóla

Ég er nýverið búinn að liggja yfir gömlum ljósmyndum (frá um 1900) frá Íslandi og Færeyjum. Þessar myndir eru úr safni Cornell háskóla og veita skemmtilega innsýn inn í samfélag sem er við það að taka stórt skref inn í nútímann.

Safnið hefur verið gert aðgengilegt á flickr-síðu Cornell, og hægt að nálgast myndirnar í nokkuð háum gæðum.

cornellmyndamappa
Íslendingur á hesti sínum - Seyðisfirði (um 1900).

Sjálfum þykir mér alltaf merkilegast að skoða fólkið á svona gömlum myndum. Það er eitthvað óraunverulegt við að horfa svona aftur í tímann. Fólkið er líka yfirleitt svo hæverskt á myndunum, og sjaldan með einhver sýnileg látalæti, þannig að manni líður oft eins og maður gæti tekið það tali.

Einnig eru merkilegar þessar ljósmyndir af eldhúsum í torfbæjum. Það eina sem manni dettur í hug, er orðið fornöld.




7.5.2011 | Mottur fyrr og nú... (en aðallega fyrr)

Nýlega var mottumars, þar sem margir, ef ekki flestir, íslenskir karlmenn reyndu fyrir sér með yfirvaraskeggrækt. Sumum lukkaðist þetta. Öðrum ekki.

Öll þessi umfjöllun fékk mig þó til að hugsa um yfirvaraskegg í sögulegu og félagslegu samhengi. Er það til að mynda almennt ásættanlegt að vera með yfirvaraskegg? Einskorðast skeggin við ákveðna samfélagshópa? Er söguleg hefð fyrir yfirvaraskeggjum á Íslandi? Þekkjum við marga yfirvaraskeggjaða menn úr Íslandssögunni? Hvernig menn voru þetta? O.s.frv.

Ég held að kategórískt séu svörin við öllum þessum spurningum neikvæð. Nema í mars undanfarin 2-3 ár (og í kringum Októberfest - vegna þess að Íslendingar sjá Þjóðverja fyrir sér sem skeggapa, mögulega útaf Bismark og Nietsche).

Allavega hefur maður einhverja svona frekar neikvæða mynd af mönnum með yfirvaraskegg. Það er eins og þeir hafi gleymt einhverju í lífinu. Þeir hafa gleymt metnaðnum. Þeir gleymdu skegginu undir nefinu á sér þegar þeir voru að raka sig. Núna er konan farin frá þeim (ef hún var nokkurn tíman til staðar). Þeim er samt einhvernvegin bara sama. Af því að þeir eru að reyna að muna hverju þeir gleymdu.

Þegar ég hugsa um sögufræga Íslendinga, þá á ég erfitt með að muna eftir yfirvaraskeggjuðum mönnum. Kannski af því að ég er sjálfur oft með yfirvaraskegg. Samt fjallar Íslandssagan eiginlega bara um karlmenn. Karlmenn sem eru uppteknir af skeggvexti, ef marka má taðskegglingatalið í Njálu.

Enginn forsetanna var með yfirvaraskegg. Fjölnismenn voru bara með þessar skelfilegu "hökuólar". Jón Sigurðsson sömuleiðis. hvorki styttan af Ingólfi Arnarsyni né Leifi heppna gefur manni ástæðu til að vera bjartsýnn. Ekki Steinn Steinarr, Davíð Stefánsson, Bólu-Hjálmar, Matthías Jochumsson, Jónas frá Hriflu, Bjarni Ben.

Einu mennirnir með yfirvaraskegg, sem ég man eftir í svipinn, eru Einar Benediktsson, Tryggvi Gunnarsson (Hundraðkalla-Tryggvi) og Vilhjámur frá Skáholti. Kannski er það mögulega ástæðan fyrir því að menn voru alltaf að reyna að feðra hann upp á Einar Ben?

Reyndar voru Halldór Laxness og Jóhannes úr Kötlum með einhversskonar hálfgildings yfirvaraskegg. Jón Sveinsson (of 'Nonni und Manni' fame) virðist líka hafa haft eitt slíkt, sem hann reyndi þó að fela með hökutopp, verandi Jesúítinn sem hann var.

Er ég að missa af einhverjum frægum íslenskum yfirvaraskeggjum?


2 comments
(Svanur)



7.5.2011 | Hvað er málið með lokkinn?

Í alvörunni talað, er ég einn um að sjá þetta?

doppegang1

Vill einhver vinsamlegast gefa þessum manni Superman bol, ASAP!


1 comments
(Halldór Eldjárn)



5.5.2011 | The Times They Aren't-Changing

Ég slysaðist til að renna yfir eintak af Morgunblaðinu frá 26. mars 1986 á tímarit.is.

Á meðal efnisatriða þar:

  • Bandaríski herinn skýtur loftskeytum yfir Líbýu. Almennar áhyggjur af ástandinu við Líbýu.
  • Konunglegt brúðkaup í Bretlandi.
  • Kjaradeilur og yfirvofandi verkföll.
  • Bréf í Velvakanda um tregðugleika við endurskoðun stjórnarskránnar.
  • Nauðugarsölur á frystihúsum.
  • Léleg sjónvarpsdagskrá.
  • Auglýsingar um fyrirlestra um samþættingu háskólasamfélagsins við atvinnulífið.
  • Staksteinar drulla yfir Alþýðuflokkinn.
  • Ítökum Rupert Murdoch yfir dagblaðamarkaðnum í Bretlandi mótmælt þarlendis.
  • Íslendingar á barmi þess að verða orkustórveldi með fyrirhugaðri framleiðslu vetnis.
  • Pólitískur óstöðugleiki í Ísrael.
  • Áfellisdómar yfir stjórnarstefnunni og þeirri fátæktargildru sem hún hefur leitt Íslendinga í.
  • Alþingismenn hneykslast á biðröðum Íslendinga sem þiggja félagsaðstoð, en enginn vill gangast við vandanum.
  • Bankaeftirlitið hafði haft áhyggjur af eiginfjárstöðu íslensks banka strax 10 árum áður, og hafði gert margvíslegar athugasemdir við ýmsa þætti í rekstrinum.
  • Fjöldi óleystra mála á borði ríkisstjórnarinnar...

Það versta er samt hvað djammið virðist vera glatað. Eða mikil snilld. Ég átta mig ekki alveg á því.

dularvervskvoldakreml

Mér finnst allavega dulargerviskvöldið á Kreml virka mjög athyglisvert. Eins og reyndar einkennisorð staðarins: "Eigi er kuldi í Kreml nema kynkuldi sé!".

Hvað þýðir það einu sinni?


1 comments
(Eiki)



4.5.2011 | Hvar kaupir maður plötur?

vinyl collection

Ég fékk plötuspilara í afmælisgjöf og hef notið þess í miklum mæli að hlusta á plötur undanfarið.

Upp á síðkastið hef ég þó verið að lenda í smá vandræðum með mig, og það er í tengslum við plötukaup.

Hingað til hef ég látið eftir mér að kaupa eina og eina plötu í Hljómsýn og Smekkleysu, en mér þykir þær heldur í dýrari kantinum.

Ég hef kíkt í Góða hirðinn, en þar var lítið af hafa, enda farið að færast nær lokun þegar ég var á ferðinni.

Ég var reyndar bara rétt búinn að líta inn í Lucky Records - þyrfti að kíkja aftur við betra tækifæri. Mér sýndist samt svona í fljótu bragði að það sem væri virkilega vel með farið og væri eitthvað varið í, væri nokkuð hátt verðlagt.

Ég hef mikið verið að skoða möguleikann á að panta ýmis dót af netinu, en ég bara veit ekki alveg hvar ég ætti að byrja. Allar ábendingar um reasonable vinyl-retailera á netinu væru vel þegnar.

Einnig... Borgar sig að panta vinyl af netinu eða er það a fool's game?


4 comments
(Halli)



3.5.2011 | Vefsíða sem finnur stolnar myndavélar

Margir hafa lent í því að tapa stafrænum myndavélum, hvort sem það er af misgáningi, eða einhver hefur stolið þeim.

Sjálfur hef ég orðið fyrir þessari hvimleiðu reynslu, og því varð ég nokkuð hrifinn af nýrri síðu sem reynir að aðstoða mann við að hafa upp á myndavélunum sem maður hefur tapað.

Stolen Camera Finder ber dulkóðuð raðnúmer af myndunum sem maður á í safninu sínu við raðnúmer á myndum sem hafa komið fram á netinu.

Síðan reiðir sig þannig á það að einhver óprúttinn aðili sem hefur myndavélina þína undir höndum birti myndir sem hann tekur á hana á netinu.

Ég fann nú ekki myndavélina mína sem ég tapaði, en mér finnst hugmyndin vera snilld.


1 comments
(Sigurgeir Þór)



1.5.2011 | Smáfólk að gera hluti í stórum heimi

littlepeople

Ég heillaðist dálítið af þessari myndasyrpu á Flickr. Það er eitthvað mjög áhugavert við það þegar eðlilegum hugmyndum manns um stærðarhlutföll er kollvarpað, samanber Gúlíver og allt það...