Ég fékk plötuspilara í afmælisgjöf og hef notið þess í miklum mæli að hlusta á plötur undanfarið.
Upp á síðkastið hef ég þó verið að lenda í smá vandræðum með mig, og það er í tengslum við plötukaup.
Hingað til hef ég látið eftir mér að kaupa eina og eina plötu í Hljómsýn og Smekkleysu, en mér þykir þær heldur í dýrari kantinum.
Ég hef kíkt í Góða hirðinn, en þar var lítið af hafa, enda farið að færast nær lokun þegar ég var á ferðinni.
Ég var reyndar bara rétt búinn að líta inn í Lucky Records - þyrfti að kíkja aftur við betra tækifæri. Mér sýndist samt svona í fljótu bragði að það sem væri virkilega vel með farið og væri eitthvað varið í, væri nokkuð hátt verðlagt.
Ég hef mikið verið að skoða möguleikann á að panta ýmis dót af netinu, en ég bara veit ekki alveg hvar ég ætti að byrja. Allar ábendingar um reasonable vinyl-retailera á netinu væru vel þegnar.
Einnig... Borgar sig að panta vinyl af netinu eða er það a fool's game?
Finnst Lucky Records góðir. Meðalhátt verð, og vel með farið stöff. Hefurðu tékkað á básum í Kolaportinu? Oft einhverjir sérfræðingar þar að selja vínyl. Svo er ekkert að því að athuga á ebay hvort það sé einhver að selja safnið sitt á $150, sem er mjög algengt. Málið er bara að leita nógu vel, en hinsvegar gætu sendingargjöld orðið há vegna þyngdar platnanna og sömuleiðis er alltaf hætta á að tollómyndirnar flokki þetta sem 'upptökutæki' og 'lúxusvarning' :P
ég nota mest juno.co.uk og boomkat.com, sú fyrrnefnda er eins og risastórt vöruhús með endalaust úrval (maður þarf að fara í gegnum mikið af drasli líka) en sú síðarnefnda er meira specialist store. Alternatív við ebay er svo Discogs.com sem eru með markaðstorg, þar má finna ágætis díla og wishlist fídusinn er mjög góður til þess að hjálpa manni að fylla í holur.
Af tónlist þarf maður að borga 10% toll og 7% vsk auk fasts tollskýrslugjalds (einhverjir 100 kallar).
eBay.com, musicstack.com, gemm.com, discogs.com
Hef fína reynslu af öllum þessum síðum. Skoðaðu alltaf einkunn seljendanna, ef það er ekki í 96-100% skaltu lesa commentin tilað vita afhverju viðkomandi fær ekki betri einkunn.
Sammála Kalla, wishlistinn á Discogs er mjög þægilegur. Maður fær, ef maður vill, reglulegt ímeil-update með því af listanum sem er í sölu.
Ef þú ert á leið eitthvað út, eða þekkir einhvern sem er bráðlega á leið heim mæli ég hiklaust með að senda plöturnar á erlenda addressu, þannig sleppurðu við öll íslensk gjöld.
The password to post a comment is:
(Halli)